Þrjú börn á þremur árum - sjáðu prinsessuna sem fæddist um helgina Ellý Ármanns skrifar 13. janúar 2014 14:30 Stúlkan sem fæddist um helgina var 17 merkur og 52 cm. myndir/einkasafn
Vaxtarræktarjöfurinn Magnús Bess Júlíusson og unnusta hans, fitnessdrottningin Katrín Eva Auðunsdóttir, eigðnuðust 17 marka stúlku á sunnudagsmorgun. Hún er þriðja barnið þeirra á þremur árum. Við heyrðum stuttlega í Katrínu sem er að vonum í skýjunum.Fjölskyldan saman jólin 2013 þá Katrín barnshafandi af stúlkunni sem fæddist á sunnudagsmorgun. Hér heldur hún á Ísabellu Bess sem fæddist 30. mars 2011. Þá er Ísak Auðunn Bess sem kom í heiminn 6. júlí árið 2012 í fanginu á pabba sínum.,, Algjör orkubolti með mikið svart hár," skrifaði Katrín við þessa mynd af prinsessunni.Allt hefur gengið eins og í sögu „Ég hef verið ótrúlega heppin með fæðingarnar og allar gengið eins og í sögu. Þessi þriðja var samt auðveldust og við vorum farin heim bara nokkrum tímum seinna. Ég fór uppá spítala rúmlega klukkan þrjú að nóttu til og hún fæddist svo klukkan 8:14 í gærmorgun,“ segir Katrín sem gekk með stúlkuna tæplega 42 vikur. Ólétt síðan þjálfunin hófstSaman reka Magnús og Katrín vefinn Betriárangur.is. Hvernig gengur að reka heimili samhliða þjálfuninni? „Ég er í besta starfi í heimi samhliða þessum meðgöngum og hef í raun verið ólétt eða nýbúin að fæða alveg síðan við byrjuðum með þjálfunina,“ útskýrir Katrín og heldur áfram: „Þannig að við látum þetta ganga upp. Þjálfunin hefur undið mjög svo uppá sig og þetta er orðið virkilega stórt batterí í dag en ég vil þakka hinum kvenhelmingnum mínum Alexöndru Sif fyrir sinn metnað í garð þjálfunarinnar. Án hennar værum við ekki á þessum stað. Því þegar ég er með veikt barn heima eða að fæða og svo framvegis þá stendur hún vaktina og er alltaf tilbúin til að vera langt fram á kvöld og fórna helgarfríinu sínu í að klára allt sem fyrir er.“Lífið er ljúft „Mér finnst við því ríkasta fólk í heimi. Við höfum kynnst svo frábærum stelpum og konum í gegnum starfið, allt þetta barnalán, rík af vinum og eigum bæði frábærar fjölskyldur. Lífið er svo ljúft,“ segir nýbökuð mamman áður en kvatt er. Fyrir á Magnús þær Rögnu Dögg fædda 1991 og Viktoríu Rós fædda 1997.
Mest lesið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Fleiri fréttir Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Sjá meira