Ævar vísindamaður með eigin þátt Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 14. janúar 2014 19:00 mynd/Einkasafn
Þátturinn Ævar vísindamaður hefur göngu sína á RÚV 1. febrúar. Þátturinn er fyrir börn og unglinga og er kastljósinu beint að vísindum fyrir þann hóp. Ævar vísindamaður hefur verið reglulegur gestur í Stundinni okkar síðustu fimm árin, en vegna mikilla vinsælda hefur hann nú fengið sinn eigin þátt. Þátturinn sem fer í loftið laugardaginn 1. febrúar er sá fyrsti af alls átta þáttum, sem allir eru 25 mínútur að lengd. Það gengur á ýmsu í þáttunum; áherslan er lögð á að kveikja áhuga á vísindum og notar Ævar vísindamaður hinar ýmsu aðferðir til þess. Vísindamenn úr mannkyns- og bókmenntasögunni verða einnig til umfjöllunar og fékk Ævar nokkra af helstu stórleikurum þjóðarinnar til að bregða sér í gervi þeirra. Ingvar E. Sigurðsson er til dæmis tímaferðalangurinn úr skáldsögu H.G. Wells, Þórunn Arna Kristjánsdóttir er Marie Curie, Snorri Engilbertsson er Dr. Victor Frankenstein og Jóhannes Haukur Jóhannesson er sjálft skrímslið. Í haust biðlaði Ævar vísindamaður til allra barna og unglinga á Íslandi og efndi til tilrauna-myndbandakeppni. Viðtökurnar urðu framar öllum vonum, en yfir hundrað myndbönd bárust frá bæði einstaklingum og bekkjum alls staðar að af landinu. Dómnefndin, sem meðal annars inniheldur rektor HÍ, situr nú sveitt að störfum við að velja sigurvegarana. Ævar vísindamaður er leikinn af Ævari Þór Benediktssyni, sem jafnframt skrifar þættina.
Mest lesið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Áskorun Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Fleiri fréttir „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Sjá meira