Ekki láta spila með þig Fannar Karvel íþróttafræðingur skrifar 7. janúar 2014 15:30 Töfrapillur eru ekki til, segir Fannar.
Gefðu þér góðan tíma Gefðu þér tíma til að komast þangað sem þú ætlar þér og mundu að ferðalagið á að vera skemmtilegt. Ef þú vilt endilega skyndilausnir þá skaltu sætta þig við það að hlutirnir fara líka hratt í sama, slæma farið aftur. Ef þú vilt langtíma breytingu til hins betra skaltu gefa þér góðan tíma. Settu þér stór markmið, ekki vera hræddur við það, fáðu svo aðstoð við að búta stóru hlutina niður í lítil, raunsæ markmið. Árangur er það sem allir vilja en til þess að ná árangri þarf vinnu, oft heilmikla vinnu og þar liggur vandinn, það eru fáir sem eru tilbúnir í erfiðið. Þeir sem leggja það á sig sjá ALDREI eftir því og skilja ekkert í þeim sem sitja eftir í sömu hjólförunum áfram.Steinar Bje og pistlahöfundur.Hlustaðu velMataræðið er mun einfaldara en margir vilja meina. Borðaðu í því magni sem þú þarft, ef þú hlustar nógu vel á það sem líkaminn er að segja þér þá veistu hvað þú þarft og hvenær. Borðaðu fjölbreyttan mat; kjöt, fisk, kjúkling, grænmeti, ávexti, hnetur og fræ. Ávextir og grænmeti eru sérstaklega mikilvæg, þú þarft ca. 500gr á dag en flest fáum við ekki mikið meira en 200 gr. Ef maturinn þinn er pakkaður í plast eða dós og furðulegur í laginu ættirðu sennilega ekki að borða hann, þeim mun nær náttúrunni sem hann er, þeim mun betra.Fannar hvetur lesendur til að hreyfa sig.Fjölbreytni er málið Æfingar þurfa að vera alhliða, nema þú sért á leið á svið í fitness eða að keppa í kraftlyftingum. Þú þarft að lyfta, hlaupa, hoppa, halda stöðum, snúa þig og fetta og bretta á allan mögulegan hátt. Flestir sem byrja að hreyfa sig um áramót gera það til að efla heilsuna og líða betur, það er fólkið sem þarf að geta lyft þurrkaranum þegar amma er að flytja, skriðið á eftir litlu krílunum þegar þau vilja leika og gengið Esjuna án þess að vera rúmliggjandi það sem eftir lifir sumars. Sjáðu fyrir þér íþróttamann, til dæmis fótboltamann, hann þarf að hreyfa sig á allan mögulegan máta og er líklegur til að geta það, þetta er það sem þú vilt og þú átt að æfa einsog íþróttamaður. Hnébeygjur með þungar bjöllur, einfættar hnébeygjur í TRX, sveiflur, mjaðmaréttur, hliðarhopp, stuttir sprettir, armbeygjur og upphífingar. Þetta eru þeir hlutir sem eiga að vera í vopnabúri ALLRA þeirra sem eru að koma sér í form eða eru komnir þangað nú þegar.Ekki stökkva á töfralausnir Ekki stökkva á töfralausnir eða gífuryrði, töfrapillur eru ekki til frekar en töfrabaunir, ekki láta spila með þig. Ef þú þarft aðstoð vertu þá gagnrýninn og finndu hvar er best að byrja, hvern er best að spyrja og hvað er best að gera. Hafðu hlutina einfalda og þá nærðu þangað sem þú ætlar þér! Einn, tveir, þrír og formið er komið - sjá hér.Karvelio.com
Mest lesið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Áskorun Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Fleiri fréttir Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Sjá meira