Læknalaun og lífsgæði Sigrún Júlíusdóttir skrifar 19. desember 2014 07:00 Ekki aðeins vega nú sitjandi stjórnvöld að menningu og menntakerfi íslensks samfélags heldur líka heilbrigðisþjónustunni. Það má ekki á milli sjá hver þessara grunnstoða er mikilvægust, en óhætt er að fullyrða að gengi heilbrigðiskerfisins er upp á líf og dauða, bæði sjúklinga og starfsfólks. Auk almannahagsmuna varðar það virðingu og velferð þeirra fagstétta sem þar starfa.Vanræksla og gildismat stjórnvalda Svo rammt hefur kveðið að vanrækslu stjórnvalda í viðhaldi, endurgerð og nýbyggingum fyrir heilbrigðisþjónustu ásamt aðgerðaleysi í endurnýjun tækjabúnaðar og innleiðingu nýrra meðferðarleiða, að stefnir í starfsstol. Afleiðingarnar hafa meðal annars komið fram í því að lækningaliðið sýkist líkamlega af spillingu húsakostsins og sífellt fleiri sýna einkenni kulnunar eða kikna undan álagi, þrengslum, fjárþrengingum og úrræðaleysi. Tíðni vinnuglapa og mistækra ákvarðana eykst við slíkar aðstæður og veldur í senn skaða, vantrausti og óöryggi meðal notenda þjónustunnar. Ekki er þörf á að mála upp fleiri hliðar á stöðunni. Hún blasir við öllum sem þar starfa, þeim sem sækja þjónustuna og þeim sem fylgjast með samfélagsumræðu lærðra og leika. Í launadeilu lækna og ríkisins er nú tekist á um hvort koma eigi til móts við launakröfur lækna eða missa þá úr landi. Þetta er nokkuð einfölduð uppsetning á siðferðisklemmunni og lýsir takmarkaðri tvenndarhugsun. Vandinn er flóknari og liggur dýpra. Lausnin gæti hins vegar verið önnur og nærtækari. Í rauninni snýst hún um skipulag, starfsaðstæður, verðmætamat og lífsgæði, og hún á við um allt fagfólk í velferðarþjónustu. Enginn meðal sérhæfðs fagfólks kýs í dag að vinna við þær aðstæður sem lýst var hér að framan. Allra síst þeir sem kynnst hafa af eigin raun vel rekinni heilbrigðisþjónustu annars staðar, hátæknisjúkrahúsum og fagumhverfi þar sem ríkir eðlilegt aðhald, hvatning og eftirlit með hinum ólíku faghópum. Slíkt felur m.a. í sér að ótakmarkaður vinnutími er ekki leyfður, krafist er endurmenntunar og þannig hvatt til viðhalds og endurnýjunar þekkingar og eigin krafta. Þetta endurspeglar virðingu fyrir manngildi og opinberri stefnumörkun um heilsu- og fjölskylduvernd.Vinnukvöð, heilsa og mörk Á Íslandi hefur vinna löngum verið talin dyggð, því meiri vinna, því meiri hamingja. Því meira sem hægt er að afla því meira sé hægt að berast á. Því meira sem þjösnast er áfram því meiri sé hetjuskapurinn. Sú háttsemi snýst þó í reynd oft upp í andhetjuhátt, eins og svo vel er lýst í stolttákni þjóðarinnar Sjálfstæðu fólki. Í bændasamfélaginu var viðtekið að sofa þann (myrka) hluta ársins sem ekki tók til bjargræðistímans þegar unnið var „myrkranna á milli“. Þar stýrði náttúran. Á öldum áður voru kjörin kröpp og oft komust menn í lífsháska við að draga björg í bú – til að lifa af. Liður í aukinni mannvirðingu og menningu þessarar þjóðar var að setja svokölluð vökulög árið 1921 um sex tíma svefn til verndar sjómönnum sem þurft höfðu að nota vökustaura til að sofna ekki ofan í veiðina eftir óheyrilegar vinnutarnir, barning, vosbúð og meðfylgjandi doðasótt – oft nær hvíldarlaust allt árið. Við erum sem betur fer almennt ekki stödd þar lengur. Þó eru nú dæmi um mistök í heilbrigðisþjónustu þar sem hin vökula fagábyrgð hefur sljóvgast vegna svefnleysis, ofurálags eða langtíma starfsþreytu, og umhverfst í doða. Stundum tengist þetta menningarlegu misgengi, gömlum gildum um þrautseigju og þor, en þó líklega mest vanþróuðum starfsaðstæðum, stjórnleysi og skorti á mannafla samhliða góðum vilja og grandaleysi fagfólks. Enginn meðal notenda þjónustunnar kýs í dag að setja líf sitt og heilsu í hendur þeirra sem búa við þannig starfsaðstæður að líkja má við bráðabirgða-sjúkraskýli og álag sem er í ætt við stríðsástand. Upplýstur almenningur lætur ekki segja sér að þetta sé sæmandi fyrir fagfólk eða boðlegt fyrir eina ríkustu þjóð heims. Allra síst sá hópur sem hefur búið annars staðar á Norðurlöndunum við nám eða störf og notið þar lögverndaðrar velferðarþjónustu, meðal annars um búnað, vinnutíma og málafjölda starfsmanna.Fagmennska, frítími og fjölskyldulíf Á Íslandi hafa gæði fjölskyldutengsla lengst af verið í hávegum höfð og við stærum okkur af öflugra fjölskyldunetverki en nágrannalöndin. Vitað er úr rannsóknum að mikil vinna og starfsmetnaður rýrir síður gæði hjónabands og foreldrahlutverka ef tími og skilningur er til að huga að jafnvægi heildarmyndar vinnu-frítíma-einkalífs og forgangsraða í þágu hjónabands og fjölskyldu. Einnig að farsæl sambúð, persónurækt, vinatengsl og frístundaiðkun tryggja heilbrigði og önnur lífsgæði. Enginn sem virðir eigin þarfir kýs í dag að geta ekki ræktað hjónaband og einkalíf, sinnt börnum sínum og auðgað líf sitt með félagslegum samskiptum vegna of langrar vinnuviku, álags og ofþreytu. Allra síst þeir sem hafa kynnst þeim verðmætum sem felast í hæfilega langri vinnuviku og nægilegum frítíma til að endurhlaða orkuna. Og, enn síður þeir sem hafa notið þeirra lífsgæða í öðrum löndum að skipuleggja barneign, eignast mörg börn, og hafa tíma til að koma heim til þeirra á venjulegum vikudögum meðan þau eru ennþá vakandi. Er þá ónefnt gildi þess að geta tímabundið strokið um frjálst höfuð án bakvakta og áreitis farsíma og tölvu, þannig að hugurinn tæmist og þrekið eflist til að geta stutt við heilsu og velferð annarra. Eitt af hlutverkum stjórnmálamanna er að hlusta á fólk og leysa mál á grundvelli þekkingar og skilnings á hjartslætti tímans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun
Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun
Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun