Elvar Már fór á kostum á heimavelli Brooklyn Nets | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. desember 2014 09:30 Elvar Már Friðriksson var sjóðheitur. vísir/getty
LIU Blackbirds vann þriðja leikinn í röð í efstu deild bandaríska háskólakörfuboltans í nótt þegar liðið lagði Florida International á heimavelli, 69-58. Leikurinn fór fram í Barcklays Center sem er heimavöllur NBA-liðsins Brooklyn Nets. Martin Hermannsson og Elvar Friðriksson spiluðu mjög vel í leiknum. Florida-liðið komst yfir þegar rúmar tólf mínútur voru til leiksloka, 43-39, en LIU svaraði með 10-2 kafla þar sem Elvar Már skoraði meðal annars tvær þriggja stiga körfur. Með því tóku Svartþrestirnir völdin í leiknum og innbyrtu sinn þriðja sigur í röð eftir að tapa sex fyrstu leikjum sínum. Njarðvíkingurinn Elvar Már fann sig mjög vel á NBA-gólfinu og var stigahæstur á vellinum með 17 stig auk þess sem hann tók tvö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Martin Hermannsson, nýbakaður íþróttamaður Reykjavíkur, skoraði tíu stig, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu. Elsta árs neminn Gerrell Martin heldur áfram að spila vel, en hann skoraði 15 stig, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Hér að neðan má sjá brot úr leiknum þar sem Elvar Már er í aðalhlutverki, en hann setur meðal annars þriggja stiga körfu langt fyrir utan teig og afgreiðir tvö hraðaupphlaup á stórkostlegan máta.
Körfubolti Mest lesið Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Vill að Messi segi sannleikann Fótbolti Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Enski boltinn Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Fótbolti Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Fótbolti „Vanmetnasti knattspyrnumaður heimsins“ Fótbolti Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Fótbolti Stórstjarnan flytur til Dúbaí í miðju stríði Sport Sindri út til Guðrúnar og kveður Keflavík Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi með hæstu einkunn í flottum sigri Ævintýri Stólanna lauk á spennuleik Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Sjá meira