2+1 = fjöldi mannslífa Ingimundur Gíslason skrifar 31. janúar 2014 06:00 Hörmuleg dauðaslys í umferðinni undanfarnar vikur vekja til umhugsunar um ástand þjóðvega á Íslandi. Fjögur ungmenni hafa látið lífið þegar bílar úr gagnstæðri átt skullu saman. Ef bílunum hefði verið ekið á svokölluðum 2+1 vegi með vegriði á milli akbrauta í gagnstæða átt er líklegt að afleiðingar slysanna hefðu orðið allt aðrar. Ég minnist þess að árið 2006 voru uppi áætlanir um svokallaða 2+1 vegi á helstu þjóðbrautum út frá Reykjavík. Þrýstingur hagsmunaaðila og kjördæmapotara varð til þess að ákveðið var að leggja áherslu í staðinn á tvöföldun vega – illu heilli. Svo varð hrun og engir peningar til að leggja slíka lúxusvegi. 2:1 vegir í útlöndum hafa sannað gildi sitt sem fyrirbyggjandi mannvirki til að fækka dauðaslysum í umferðinni. Í sænska tímaritinu Motor kemur fram það mat sérfræðinga að á árunum 2000 til 2012 hafi 2+1 vegir með millivegriði bjargað 600 mannslífum og um það bil 10.000 manns frá annars konar alvarlegum slysum. Talið er að það kosti einn tuttugasta af verði tvöfaldrar hraðbrautar að breyta 13 metra breiðum vegi í 2+1 veg. Þannig er þetta tiltölulega ódýr aðferð til að fækka banaslysum á vegum landsins. 2+1 vegir eru ekki gallalausir. Snjóruðningstæki geta tafið umferð. Í þungri færð að vetri til geta sjúkrabílar og löregla átt í erfiðleikum með að komast á slysstað. Mótorhjólamenn verða að gæta sín og draga úr hraða. Þeir sem eru að flýta sér geta þurft að draga úr hraða tímabundið. Fyrir mér er það nú bara kostur. Þess má geta að á góðum 2+1 vegum í Svíþjóð er hámarkshraði sums staðar 120 km á klukkustund. Íslensk stjórnvöld eru hvött til að fjölga 2+1 vegum á Íslandi til að fækka alvarlegum umferðarslysum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 13.06.2026 Halldór Skoðun Skoðun Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Hörmuleg dauðaslys í umferðinni undanfarnar vikur vekja til umhugsunar um ástand þjóðvega á Íslandi. Fjögur ungmenni hafa látið lífið þegar bílar úr gagnstæðri átt skullu saman. Ef bílunum hefði verið ekið á svokölluðum 2+1 vegi með vegriði á milli akbrauta í gagnstæða átt er líklegt að afleiðingar slysanna hefðu orðið allt aðrar. Ég minnist þess að árið 2006 voru uppi áætlanir um svokallaða 2+1 vegi á helstu þjóðbrautum út frá Reykjavík. Þrýstingur hagsmunaaðila og kjördæmapotara varð til þess að ákveðið var að leggja áherslu í staðinn á tvöföldun vega – illu heilli. Svo varð hrun og engir peningar til að leggja slíka lúxusvegi. 2:1 vegir í útlöndum hafa sannað gildi sitt sem fyrirbyggjandi mannvirki til að fækka dauðaslysum í umferðinni. Í sænska tímaritinu Motor kemur fram það mat sérfræðinga að á árunum 2000 til 2012 hafi 2+1 vegir með millivegriði bjargað 600 mannslífum og um það bil 10.000 manns frá annars konar alvarlegum slysum. Talið er að það kosti einn tuttugasta af verði tvöfaldrar hraðbrautar að breyta 13 metra breiðum vegi í 2+1 veg. Þannig er þetta tiltölulega ódýr aðferð til að fækka banaslysum á vegum landsins. 2+1 vegir eru ekki gallalausir. Snjóruðningstæki geta tafið umferð. Í þungri færð að vetri til geta sjúkrabílar og löregla átt í erfiðleikum með að komast á slysstað. Mótorhjólamenn verða að gæta sín og draga úr hraða. Þeir sem eru að flýta sér geta þurft að draga úr hraða tímabundið. Fyrir mér er það nú bara kostur. Þess má geta að á góðum 2+1 vegum í Svíþjóð er hámarkshraði sums staðar 120 km á klukkustund. Íslensk stjórnvöld eru hvött til að fjölga 2+1 vegum á Íslandi til að fækka alvarlegum umferðarslysum.
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun