Dramatískur sigur KFÍ - Joshua Brown með 49 stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2014 18:48 Mirko Stefán Virijevic hjá KFÍ. Vísir/Daníel
KFÍ vann dramatískan og gríðarlega mikilvægan eins stigs sigur á Skallagrími, 83-82, í kvöld í 15. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta en með honum náðu Ísfirðingar Borgnesingum að stigum í baráttunni fyrir lífi sínu í deildinni. Joshua Brown átti magnaðan leik fyrir KFÍ en hann skoraði alls 49 stig í leiknum, 27 stig í fyrri hálfleik og 22 stig í seinni hálfleik. Mirko Stefán Virijevic var líka öflugur með 26 stig og 15 fráköst. KFÍ náði að vinna leikinn þrátt fyrir að aðeins fjórir leikmenn liðsins skoruðu í leiknum. Páll Axel Vilbergsson skoraði 36 stig fyrir Skallagrím en hann hitti úr 9 af 14 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Miklu munaði um það fyrir Skallagrím að Benjamin Curtis Smith klikkaði á tólf fyrstu skotum sínum og nýtti á endanum aðeins 3 af 18 skotum sínum í leiknum. Hann náði samt þrefaldri tvennu, var með 14 stig, 12 fráköst og 10 stoðsendingar. Páll Axel Vilbergsson skoraði 29 stig í fyrri hálfleik og Skallagrímur var þremur stigum yfir í hálfleik, 46-43. Páll Axel skoraði meðal annars fimm þrista á fyrstu fimm mínútum sem Skallagrímur vann 15-4. KFÍ snéri við leiknum með því að vinna þriðja leikhlutann 26-13 þar sem að Joshua Brown skoraði 14 stig og KFÍ hélt áfram frumkvæðinu í lokaleikhlutanum. KFÍ var níu stigum yfir þegar tvær og hálf mínúta var eftir af leiknum en Skallagrímsmenn náðu að minnka muninn niður í eitt stig og Benjamin Curtis Smith fékk síðan tækifæri til að tryggja sínu liði sigurinn í blálokin. Skot Smith klikkaði og KFÍ-menn fögnuðu mikilvægum sigri.KFÍ-Skallagrímur 83-82 (16-20, 27-26, 26-13, 14-23)KFÍ: Joshua Brown 49/8 fráköst, Mirko Stefán Virijevic 26/15 fráköst, Hraunar Karl Guðmundsson 6/4 fráköst, Valur Sigurðsson 2.Skallagrímur: Páll Axel Vilbergsson 36/7 fráköst, Benjamin Curtis Smith 14/12 fráköst/10 stoðsendingar, Grétar Ingi Erlendsson 10/4 fráköst, Orri Jónsson 9, Egill Egilsson 8/4 fráköst, Davíð Ásgeirsson 2, Trausti Eiríksson 2, Sigursteinn Orri Hálfdánarson 1.
Dominos-deild karla Mest lesið EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti United boðið að skrapa botninn á tunnunni Fótbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Brottreksturinn kom Horner í opna skjöldu Formúla 1 Hélt fótboltabúðir fyrir hinsegin ungmenni Sport Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Körfubolti Sengun í fantaformi í sumarfríinu Körfubolti Djokovic í undanúrslit í fjórtánda sinn Sport Algjörir yfirburðir PSG gegn Real Madrid Fótbolti Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Sport Fleiri fréttir Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Sjá meira