Hvers vegna ekki húsnæðissamvinnufélög? Búmenn skrifar 11. júní 2014 07:00 Það vakti furðu félaga í Búmönnum hsf., þegar frumvarp til laga um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána var lagt fyrir Alþingi Íslendinga. Í 3. gr. frumvarpsins, sem nú er orðið að lögum, segir: „Leiðrétting tekur ekki til lögaðila, þrátt fyrir að til láns hafi verið stofnað með beinum eða óbeinum hætti í þágu einstaklinga. Þ.m.t. samkvæmt lögum nr. 66/2003, um húsnæðissamvinnufélög.“ Með þessu ákvæði er greinilegt að öllum sem eiga búseturétt í íbúðum Búmanna, eða hjá öðrum húsnæðissamvinnufélögum, er haldið utan við þessar leiðréttingar. Rök fyrir þeirri ákvörðun eru síður en svo augljós. Búmenn er húsnæðissamvinnufélag sem ekki er rekið með ágóðasjónarmið í huga heldur hefur að markmiði öflun og umsjón hentugs íbúðarhúsnæðis fyrir fólk sem komið er yfir miðjan aldur. Á bak við hvert einasta íbúðarlán sem veitt hefur verið til félagsins er fólk sem er að reyna að tryggja sér hentugt húsnæði. Það hefur skuldbundið sig til að greiða af lánunum sem Íbúðalánasjóður veitti til byggingar þessara íbúða með undirskrift sinni á þinglýstum samningi við Búmenn. Þau hafa lotið nákvæmlega sömu lögmálum og önnur lán sem Íbúðalánasjóður hefur veitt einstaklingum. Eini munurinn er að íbúarnir greiða af lánunum til Búmanna sem greiða svo aftur til Íbúðalánasjóðs, þ.e. greiðslan til sjóðsins fer í gegnum kennitölu Búmanna. Það er rétt að vekja athygli á að fyrir þann 5. október 2008 var enginn rekstrarvandi hjá Búmönnum og vanskil við Íbúðalánasjóð engin. Við hrunið breyttist margt hjá þeim eins og öðrum. Lán þeirra stökkbreyttust á nákvæmlega sama hátt og hjá öðrum íbúðareigendum og þar með greiðslubyrði íbúa hjá Búmönnum. Til viðbótar breyttust mjög aðstæður á íbúðamarkaði í suðurkjördæmi, ekki síst á Reykjanesi þar sem inn á markaðinn kom mikill fjöldi leiguíbúða sem áður tilheyrðu hernum á Keflavíkurflugvelli. Þær voru settar á markað langt undir markaðsverði og ekki var mögulegt að keppa við þær í verði. Þetta hefur valdið Búmönnum ómældum erfiðleikum og þrátt fyrir viðræður við starfsmenn Íbúðalánasjóðs síðastliðin fimm og hálft ár hafa þær engu skilað. Sama er að segja um viðbrögð frá ráðherrum og nefndaformönnum við málaleitunum Búmanna. Á sama tíma heyrum við að félagsmálaráðherra og forustumenn launþegasamtaka, ásamt sveitarstjórnarmönnum, eru ræða um stofnun nýrra húsnæðissamvinnufélaga að norrænni fyrirmynd sem á að leysa allan vanda fólks varðandi valkosti í húsnæðismálum! Aðgerðir stjórnvalda í skuldamálum, hvað varðar félagsmenn Búmanna, ganga þvert á framtíðarsýn sömu stjórnvalda. Með henni er félagsmönnum húsnæðissamvinnufélaga stórlega mismunað. Dettur einhverjum í hug að það hvetji til stofnunar nýrra slíkra félaga? Ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur lagt áherslu á að um almennar aðgerðir sé að ræða varðandi leiðréttingu íbúðalána. Það gengur ekki að ætla að skilja útundan á sjötta hundrað fjölskyldna hjá Búmönnum. Lán þeirra hafa tekið hækkunum hvern mánuð á nákvæmlega sama hátt og hjá öllum öðrum sem skulda í sinni íbúð. Lán þeirra tilheyra vaxtabótakerfinu og þar með eru þær taldar af ríkisvaldinu nær því að vera eigendur en leigjendur fram að þessu. Eins hafa þeir, sem aldur hafa til, notið afsláttar af fasteignagjöldum.Hvað er framundan? Afar brýnt er að húsnæðissamvinnufélög landsins fái að vita um áform stjórnmálamanna og Íbúðalánasjóðs um framtíð sína milliliðalaust. Aðgerðarleysi og ósamkvæmni í málflutningi er ekki viðunandi. Ríkisstjórnin getur ekki hvatt til stofnunar nýrra húsnæðissamvinnufélaga meðan félagar þeirra sem fyrir eru verða að þola misrétti. Nær væri að notfæra sér reynslu þeirra og búa í haginn fyrir þau með endurskoðun á lagaumhverfinu. Ríkisstjórnin verður að koma sér saman um hvað hún vill. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Hátt kólesteról er ekki óvinurinn Anna Lind Fells Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun