Skrýtið að leika karlmann og vera á túr 5. september 2014 13:00 Anna Katrín/Rökkvi, Gréta Kristín/Þór, Íris Tanja/Eddi, Guðmundur/Sigga flipp, Jóhann Kristófer/Sólveig, Sigurbjartur/Birta Björt, Ólafur/Veró, Katrín Halldóra/Siggi Birgis, (fremri röð) Viktoría Blöndal/Fiddi bagg og Nína/Gabríel, en allt eru þetta krakkar á öðru og þriðja ári á leikarabraut eða sviðshöfundabraut. MYND/Víðir Guðmundsson „
Við erum í áfanga í skólanum sem heitir Skipt um kyn,“ segir Viktoría Blöndal, nemandi á þriðja ári í Fræðum og framkvæmdum í Listaháskólanum, en áfanginn er kenndur af leikurunum Maríu Pálsdóttur og Víði Guðmundssyni. „Í þessum áfanga erum við að kynnast toppnæs hlutum um hitt kynið. Við förum út til dæmis og horfum á hreyfingar hjá hinu kyninu og hvernig þau bregðast mismunandi við í mismunandi aðstæðum,“ útskýrir Viktoría, en námskeiðið er valnámskeið og er kennt í tvær vikur í byrjun annar.Viktoría blöndal Segir Fidda Bagg vera kominn til að vera. MYND/Úr einkasafni„Síðan sköpum við okkar eigin karakter og þeir eru flestir ótrúlega fyndnir og áhugaverðir. Þær týpur sem hafa sprottið upp úr þessu eru B5-djammtýpan, spænskur bifvélavirki, félagslega heftur munntóbaksunnandi, maður sem glímir við forhúðarþrengingu, „goth“-stelpa sem stundar nám í húsgagnasmíðum og flippuð miðaldra kona sem fer til Ibiza á froðudiskó. Þetta er sem sagt þverskurður af þjóðfélaginu,“ segir Viktoría og hlær. Hún segir jafnframt að hennar karakter, sem er félagslega heftur munntóbaksunnandi, hafi komið algjörlega af sjálfu sér. „Ég lagði upp með að vera svalur fótboltapungur, en í staðinn kom félagslega heftur Breiðhyltingur sem hangir í Mjóddinni og elskar munntóbak. Þannig að ég hlýt að vera glataður munntóbaksunnandi inn við beinið,“ segir Viktoría, létt í bragði, og bætir við að þau ráði ekki beint ferðinni þegar karaktersköpunin fer fram. „Þetta er allt byggt á spuna og þessir karakterar mætast því þau unnu öll í Neskaffi- og Bylgjuleik. Svo skapast fjörlegar umræður og senur. Ég hugsa að þessi karakter muni lifa eitthvað áfram. Hann hefur til dæmis verið að spreyta sig í dansi,“ segir Viktoría. „Það er samt óneitanlega skrítið að leika karlmann og vera á túr.“
Mest lesið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Frændinn sem braut á henni gengur enn laus Lífið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Lífið samstarf Fleiri fréttir „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Frændinn sem braut á henni gengur enn laus Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Sjá meira