Red Bull liðið er búið að staðfesta þær fréttir að liðið hafi formlega áfrýjað úrskurði dómara formúlu eitt keppninnar í Ástralíu um síðustu helgi um að vísa Daniel Ricciardo úr keppni. Ricciardo kom annar í mark en var svo dæmdur úr leik eftir á. Ástæðan var sú að eldsneytisflæði í bíl hans fór yfir leyfileg mörk. Hámarkið er 100 kíló á klukkustund, en mælitæki Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) sýndu meira flæði í bíl Ricciardo.
Red Bull var varað við því að mælir FIA sýndi meira flæði en 100 kg/klst. Liðið kaus að hunsa viðvörunina og byggir nú mál sitt á því að flæðimælirinn frá FIA sé bilaður. Red Bull fullyrðir að þeirra eigin mælir hafi aldrei sýnt flæði yfir leyfilegum mörkum í keppninni.
Breytingar á reglum fyrir tímabilið fólu meðal annars í sér að þessari reglu var bætt við. Nú mega liðin aðeins nota 100 kg. af eldsneyti í keppninni en þau notuðust áður við um 140-150 kg. Þetta er gert til að verkfræðingar liðanna einbeiti sér að þróun tækni til að spara eldsneyti. Vonandi mun afraksturinn skila sér í götubíla almennings innan nokkurra ára.
Ástæða þess að notast er við kílógrömm en ekki lítra í reglunum er sú að ummálið breytist eftir hitastigi, það gerir þyngdin hins vegar ekki. Það fer eftir niðurstöðu áfrýjunarinnar hvernig keppnin mun á endanum hafa farið. Eins og staðan er núna eru bæði Ricciardo og Red Bull stigalaus.
Red Bull áfrýjar máli Ricciardo

Tengdar fréttir

Daniel Ricciardo - dæmdur úr leik
Heimamaðurinn Daniel Ricciardo hefur verið dæmdur úr leik fyrir að hafa notað of mikið eldsneyti í keppninni í morgun. Ástralinn endaði í öðru sæti keppninnar.

Rosberg sigraði í Ástralíu - Vettel kláraði ekki
Nico Rosberg á Mercedes sigraði fyrstu keppni timabilsins í viðburðaríkum kappakstri í Ástralíu í morgun. Daniel Ricciardo á Red Bull var annar og nýliðinn Kevin Magnussen á McLaren varð þriðji.

Formúlan hefst á morgun | Svona er staðan á liðunum
Æfingar fyrir ástralska kappaksturinn hefjast á morgun, því er tímabært að líta yfir stöðuna í Formúlu 1 fyrir komandi tímabil.

Bílskúrinn: Fimm hlutir sem komu ljós í Ástralíu
Tímabilið í Formúlu 1 hófst í gær þegar Ástralíukappaksturinn fór fram í Melbourne en hvað kom í ljós í fyrstu keppni tímabilsins?