Afurðaverð hækkar en kjötið selst ekki Sveinn Arnarsson skrifar 26. ágúst 2014 12:00 Formaður sauðfjárbænda segir að Íslendingar missi af gullnu tækifæri með því að halda lambakjöti ekki meira að erlendum ferðamönnum. Vísir/Pjetur
Sauðfjárbændur fá 2,8 prósenta hækkun á afurðaverði í þessari sláturtíð miðað við sláturtíðina í fyrra. Afurðastöðvar hafa hver á fætur annarri gefið frá sér afurðaverð sitt til bænda og eru þær allar á svipuðum nótum. Bændur fá þar af leiðandi hækkun á verði þrátt fyrir að óselt lambakjöt frá síðustu sláturtíð nemi um tvö þúsund tonnum. Árlega eru um 9.900 tonn af kindakjöti framleidd á Íslandi. Sigurður Eyþórsson hjá Bændasamtökunum segir að þriðjungur kjötsins sé fluttur út, eða rétt tæp 3.500 tonn. Innlend neysla á kindakjöti er því nú um 4.600 tonn á ári, eða næstum helmingur þess sem framleitt er á landinu. Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Félags sauðfjárbænda, telur afurðaverðið sem bændur fá í dag vera of lágt ef hlutirnir eru grandskoðaðir. „Ef við skoðum hvað kostar að framleiða lambakjöt í dag, með öllum framleiðslukostnaði, þá er verðið til bænda mjög lágt og þyrfti að vera hærra. Þú getur keypt lambakjöt í búð á innan við 900 krónur kílóið, sem mér finnst nokkuð lítið.“Þórólfur Matthíasson.Vísir/StefánÞórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir það orka tvímælis að afurðaverð til bænda muni hækka um 2,8 prósent á sama tíma og lambakjöt seljist ekki „Þessi mynd sem við sjáum núna er ekki alveg í takt við lögmál um framboð og eftirspurn. Verðið ætti nú að lækka ef um tvö þúsund tonn eru óseld af kjöti rétt fyrir sláturtíð. Einnig ætti verðið til neytenda að lækka á þessum tíma ef miklar birgðir eru til í landinu af kjöti,“ segir Þórólfur. Þórarinn segir að afurðastöðvarnar verði að svara því hvers vegna verðið hækkar á meðan kjöt selst ekki. „Það er skýrt kveðið á um það að við megum ekki ræða afurðaverð við afurðastöðvar. Þeir hljóta að greiða fyrir kjötið það verð sem þeir telja sig geta fengið fyrir það eftir vinnslu.“ Þórarinn telur að menn hafi misst af því gullna tækifæri að markaðssetja lambakjötið fyrir erlenda ferðamenn hér á landi í sumar. „Hingað til lands koma næstum milljón ferðamenn til landsins og til að anna eftirspurn þessa hóps innanlands erum við að tífalda innflutning á nautakjöti og flytja inn gríðarmikið magn af svínakjöti. Hér hefðum við átt að gera betur og ota lambakjötinu okkar í meira mæli að þessum ört stækkandi hópi.“
Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt Sjá meira