Lífið

Insane Clown Posse í mál við FBI

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Rappararnir eru þekktir fyrir að mála sig í framan.
Rappararnir eru þekktir fyrir að mála sig í framan.
Bandaríska hljómsveitin Insane Clown Posse hefur farið í mál við FBI, alríkislögreglu Bandaríkjanna, fyrir að skilgreina aðdáendur sveitarinnar sem gengi. Insane Clown Posse á sér dyggan aðdáendahóp sem málar sig í framan og klæðist sérstökum klæðnaði og ganga undir nafninu Juggalo.

„Stjórnendur FBI þurfa að átta sig á því að þeir sem titla sig Juggalo eru einfaldlega aðdáendur sveitarinnar, þetta er ein stór fjölskylda og sameiningartáknið er ást hennar á tónlist,“ útskýrir Violent J, annar forsprakki sveitarinnar.

Í skýrslu FBI kemur fram að aðdéndurnirnir sem flokka sig sem Juggalo séu um milljón talsins. Þeir séu ofbeldishneigðir og hafa einbeitt sér að slíkum glæpum. Einnig hafa þeir látið til sín taka í eiturlyfjasölu, vörslu eiturlyfja og glæpum sem snúa að misnotkun skotvopna.

Í skýrslu um aðdáendurna tengir FBI 22 handtökur vegna eiturlyfja, tæplega 400 umferðalagabrot og eitt dauðsfall beint til gengisins. Einnig kemur fram að fjöldi ofbeldisglæpa hafi verið framinn af Juggalo meðlimum.

Sveitin Insane Clown Posse kemur frá Detroit og hafa verið að síðan 1989. Þeir eru gjarnan flokkaðir sem svokallaðir hryllings-rapparar. Þeir hafa tvisvar sinnum náð platínusölu og fimm sinnum gullsölu á tæplæga 25 ára ferli sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.