Tryggvi ráðinn nýr deildarforseti tónlistardeildar LHÍ Stefán Árni Pálsson skrifar 30. júní 2014 14:45 Tryggvi M. Baldvinsson
Tryggvi M. Baldvinsson hefur verið ráðinn nýr deildarforseti tónlistardeildar Listaháskóla Íslands frá og með 1. ágúst næstkomandi. Hann lauk diplómaprófi í tónsmíðum og tónfræði við Konservatorium der Stadt Wien árið 1992, en áður hafði hann tekið lokapróf frá tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík. Hann hefur verið mjög virkur sem tónskáld og hljómsveitarstjóri. Tónverk hans hafa verið gefin út á fjölda hljómdiska, bæði á Íslandi og erlendis. Tryggvi hefur mikla reynslu af kennslu og stjórnunarstörfum við framhalds- og háskóla og hefur verið kennari tónfræðagreina við Tónlistarskólann í Reykjavík frá 1992, deildarstjóri tónfræðadeildar 1998-2002 og deildarstjóri tónfræðagreina við sama skóla frá 2002. Tryggvi hefur verið aðjúnkt við tónlistardeild Listaháskólans frá 2002.
Menning Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið Klæddu sig upp sem frambjóðendur Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið „Nú er þessi sprettur á enda“ Lífið Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Lífið Fleiri fréttir Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur „Svolítið eins og að standa nakinn inni í vita“ Líf og fjör á Grímunni Ást Fedru og Saknaðarilmur fengu fern Grímuverðlaun hver Margrét Helga hlýtur heiðursverðlaun Grímunnar „Leikmyndin er auðvitað algjört rusl“ Gríman 2024: Saknaðarilmur hlaut flestar tilnefningar Barbara Hannigan stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni Bergur Þór nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar Nóbelsverðlaunahafinn Alice Munro er látin Fjögurra ára rússíbanareið að baki Sjá meira