18 bankastjórar fá áminningu í mars Jón Guðmundsson skrifar 25. mars 2014 07:00 Staðreyndin* er sú, að hér á landi fá 18 bankastjórar áminningu, 5 eru lækkaðir í tign og 1-2 fá reisupassann, bara í mars. Svona er þetta líka í hverjum mánuði allan ársins hring. Minn prívatbankastjóri fékk sína áminningu í desemberbyrjun 2008, svolítið kaldhæðnislegt, þar sem skömmu áður hafði orðið hrun í stofni bankastjóra peningabankanna. Það var svo fyrir 5 árum, í mars 2009, sem minn var lækkaður í tign og hefur nú það eina hlutverk að fara annað slagið út með ruslið. Þetta var áfall út af fyrir sig fyrir minn mann en hann hafði jú gegnt sínu hlutverki af kostgæfni fram að þessu. Nú var bankahólfunum lokað og allri útlánastarfsemi hætt. Þá tók við smá sólbað með sterkum geislum og pínu dópi. Það þurfti að sjálfsögðu að taka heilmikið til í hausnum hjá mínum manni til að hann sætti sig við breytt hlutskipti. Það er með þessa bankastjóra, eins og svo marga aðra, að þeir eru með frekar stórt egó og halda að þeir séu æviráðnir í mikilvægustu verkin og geti bara hagað sér eins og þeim sýnist, en það er öðru nær. Það þarf alltaf að taka tillit til annarra og sérstaklega þegar líður á starfsævina. Fara í tékk, fá sér endurmenntun og fylgjast með.Þýðir ekki að slugsa Það þýðir ekki að skella skollaeyrum við, þegar maður fer að vakna 4-5 sinnum á nóttu til að losa ruslið eða ruslið er hætt fara á réttan stað og konan skipar manni að setjast á meðan maður losar. Þá er sko kominn tími til að láta tékka á PSA (Pissa Standandi Alltaf), sé það komið upp á rauða strikið þá er stutt í áminningu. Það er í sjálfu sér ekki svo slæmt að fá áminningu ef hægt er að komast hjá því að vera lækkaður í tign, það er hvort sem er frekar rólegt í bankanum. Þess vegna vill minn maður benda kollegum sínum á, hvort sem þeir eru með mottu eða ekki, að bíða ekki með að fara í tékk, það þýðir ekki að slugsa eitthvað í vinnunni þó að það sé rólegt að gera. Minn prívatbankastjóri byrjaði tiltölulega ungur í starfsþjálfun og stóð sína plikt með reisn. Þrjú meiriháttar verkefni komu á hans borð og komandi kynslóðir eiga eftir að minnast afreka hans með hlýhug og þakklæti fyrir að vera til. P.S. Minn hefur heyrt að það sé nóg að gera í hjálpartækjabankanum og hver veit nema það megi ræða samruna við gamla sæðisbankann, kennitalan er enn til. *200-220 karlmenn eru árlega greindir með krabbamein í blöðruhálskirtli. 60 brottnámsaðgerðir eru gerðar á Lansanum á ári og 18-20 deyja úr þessu krabbameini árlega. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar