Mikill erlendur áhugi á Sónar-hátíðinni 8. janúar 2013 13:00 Björn Steinbekk hefur staðið í ströngu við skipulagningu Sónar-hátíðarinnar sem verður haldin um miðjan febrúar. fréttablaðið/stefán
Um 250 manns hafa keypt miða í Hörpu erlendis frá. NME og Guardian mæta. Um 250 manns eru búnir að kaupa miða á Sónar-hátíðina erlendis frá, en hátíðin verður haldin í fyrsta sinn hérlendis í Hörpu 15. og 16. febrúar. „Við erum mjög ánægðir með það. Það er bara frábært,“ segir skipuleggjandinn Björn Steinbekk. Einnig hafa um þrjátíu erlendir blaðamenn boðað komu sína á hátíðina, meðal annars frá The Guardian, The Sunday Times og NME. Enn eru til miðar á Sónar fyrir Íslendinga en takmarkað magn er eftir samkvæmt Birni. „Við erum búnir að selja jafnmikið af miðum og við gerðum ráð fyrir.“ Danstvíeykið Pachanga Boys hefur bæst við hátíðina. Hljómsveitin gaf í fyrra út sína fyrstu plötu, We Are Sorry, með laginu Time sem var eitt það vinsælasta í fyrra í danstónlistargeiranum. Á meðal annarra sem hafa boðað komu sína eru James Blake, Squarepusher, Modeselektor, Kasper Björke, Ásgeir Trausti, Mugison, Gus Gus og Retro Stefson. Notast verður við fjögur svið í Hörpu og verður spilað á þeim samtímis. Auk tveggja aðalsviða í Silfurbergi og Norðurljósum verður hluta af bílastæðinu í kjallara Hörpunnar breytt í næturklúbb þar sem hinir ýmsu plötusnúðar halda uppi stemningu. Eitt svið til viðbótar verður svo sett upp í Flóahorninu á fyrstu hæð Hörpunnar. 55 listamenn koma fram á þessum tveimur dögum. Dagskráin hefst báða dagana klukkan 18 og stendur yfir til klukkan þrjú um nóttina. Einnig verður boðið upp á Sónar Cinema á hátíðinni þar sem tónlistartengdar heimildarmyndir verða sýndar í salnum Kaldalóni. „Fólk getur sest niður og horft á heimildarmyndir eða parta úr þeim og farið svo í aðra sali og skemmt sér. Þetta er líka ætlað fyrir fólk til að setjast niður og slappa af með popp og kók,“ segir Björn. Stefnt er á að sýna myndir á borð við Berlin Calling, tónleikamyndin Stop Making Sense með Talking Heads, The Fearless Freaks um The Flaming Lips og myndir um hljómsveitina LCD Soundsystem og plötusnúðinn Richie Hawtin. Hitað verður upp fyrir Sónar-hátíðina á Kex, Kaffibarnum, Kaffi Reykjavík, Harlem og á Volta dagana fyrir hátíðina og veita Sónar-armbönd forgang fram fyrir röð. Miðaverð á hátíðina er 14.900 krónur og er aðeins hægt að kaupa passa sem gildir á báða dagana. freyr@frettabladid.is
Sónar Tónlist Mest lesið Matti Matt nú meistari Lífið Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Lífið Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Í Love Island eftir lífshættulegt slys Lífið Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Lífið Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn Lífið Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Lífið Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Lífið Fleiri fréttir Sigur Rós í Handmaids Tale Einn heitasti plötusnúður í heimi á leið til landsins Nauðsynlegt að gera upp fortíðina Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Kærleiksbomba frá GusGus Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira