Eurovision-pilsið innrammað og hengt upp á vegg Tinna Rós Steinsdóttir skrifar 30. maí 2013 18:12 Einar Ágúst klæðist hér pilsinu í eitt af síðustu skiptunum áður en það verður rammað inn og hengt upp vegg á 800Bar á Selfossi. Fréttablaðið/Villi
Tónlistarmaðurinn Einar Ágúst hefur nú ákveðið að láta af hendi pilsið forláta sem hann klæddist þegar hann keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2000. "Jújú, það er satt. Eurovision-pilsið verður afhent nýjum 800Bar á laugardaginn. Þetta verður bara lán samt," segir Einar Ágúst en nýr 800Bar opnaði á Selfossi á dögunum, eftir að sá gamli varð bruna að bráð í fyrra. Pilsið góða er eflaust mörgum afar minnugt en það vakti mikla athygli á sínum tíma. Einar Ágúst segir það ekki hafa verið mikið notað frá því á sviðinu í Svíþjóð fyrir 13 árum síðan. "Það hefur svotil hangið inni í skáp síðan en verið tekið fram einstaka sinnum, til dæmis fyrir Euroveislu Palla á Nasa og sérstök tilefni þar sem greitt hefur verið gott verð fyrir að koma fram í því," segir hann og hlær. "Þegar öndvegispilturinn Eiður kom að máli við mig og bað mig um að lána pilsið á nýja staðinn fannst mér það því tilvalið. Ég treysti honum til að fara vel með gripinn og mér þykir gott að láta það þangað sem svo mikið af góðum hlutum í mínu lífi hafa komið frá," bætir hann við og nefnir sem dæmi vini sína úr hljómsveitinni Skítamóral og annað gott fólk sem hann hefur haft gæfu af að kynnast, þar á meðal áðurnefndan Eið. Einar Ágúst mætir með pilsið með sér á 800Bar næstkomandi laugardagskvöld og afhendir það þá. Í framhaldinu verður það innrammað og sett upp á vegg, svo allir geta farið þangað og séð það með eigin augum. "Ætli ég mæti ekki með kassagítarinn með mér og taki nokkur vel valin lög í leiðinni," segir Einar Ágúst sem reiknar með að stíga á svið upp úr miðnætti.
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun „Erum bara vinir“ Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Fleiri fréttir Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“