Hlutafjárútboð TM fer fram í næstu viku 17. apríl 2013 12:00 TM er hið minnsta af stóru þremur tryggingafélögunum en var með bestu arðsemina af þeim árið 2012. Fréttablaðið/DANÍEL
Tvö af þremur stærstu tryggingafyrirtækjum landsins, TM og VÍS, eru eins og kunnugt er á leið á hlutabréfamarkað. Almennu útboði á bréfum VÍS lauk í gær en bréf í TM verða boðin út í næstu viku, 22. til 24. apríl. Félögin verða fyrstu tryggingafélögin á innlenda hlutabréfamarkaðnum frá hruni. Í útboði TM stendur til að selja tæplega þriðjungshlut Stoða hf., sem áður hétu FL Group, í félaginu. TM var áður alfarið í eigu Stoða eftir hrun en félagið seldi í júlí í fyrra um 60% hlut í TM til lífeyrissjóða og annarra stofnanafjárfesta. Þá seldu Stoðir um 5% hlut til viðbótar til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) í desember. Í útboðinu verða allir hlutir seldir á sama verði sem verður á bilinu 17,75 til 20,10 krónur á hlut eftir áhuga fjárfesta. Lægri mörk verðbilsins eru sama verð og LSR greiddi fyrir 5% hlutinn fyrir stuttu en 60% hluturinn sem seldur var í júlí var seldur á verðinu 14,70 krónur á hlut. Miðað við verðbilið í útboðinu er heildarvirði alls hlutafjár í TM á bilinu 13,5 til 15,3 milljarðar króna. Til samanburðar var hagnaður félagsins ríflega 2,6 milljarðar króna í fyrra en félagið hefur markað sér þá stefnu að greiða 50% hagnaðar hið minnsta út í arð á ári hverju. Rekstur TM hefur verið tekinn í gegn á síðustu árum en tekjur félagsins koma annars vegar frá vátryggingum og hins vegar frá fjárfestingum. Fyrir hrun var hlutfall tjónakostnaðar á móti iðgjöldum yfirleitt yfir 100% sem þýddi það að vátryggingahluti starfseminnar skilaði tapi. Miklar fjárfestingatekjur gerðu það hins vegar að verkum að félagið hagnaðist. Eftir hrun hefur TM lagt áherslu á að bæta grunnreksturinn og hefur hlutfall tjónakostnaðar á móti iðgjöldum verið lækkað úr 127,2% árið 2008 í 88,5% í fyrra, sem þykir til fyrirmyndar. Til marks um þennan viðsnúning hækkaði matsfyrirtækið Standard & Poor‘s matseinkunn TM úr ruslflokki í fjárfestingaflokk fyrr á þessu ári, sem gerir félaginu kleift að sækja fram erlendis þaðan sem 6% tekna þess koma. Eins og áður sagði fer útboð TM fram í næstu viku en hlutabréf félagsins verða tekin til viðskipta í Kauphöllinni í fyrsta lagi 8. maí.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Sjá meira