Þrjú fyrirtæki hlutu jafnlaunavottun VR Hrund Þórsdóttir skrifar 17. apríl 2013 19:16
Þrjú íslensk fyrirtæki hlutu í gær, fyrst fyrirtækja, jafnlaunavottun VR, en hún er ætluð fyrirtækjum og stofnunum sem vilja sýna svart á hvítu að launastefna þeirra og mannauðsstjórnun mismuni ekki konum og körlum. Karlmenn hafa að meðaltali rúmum 80 þúsund krónum meira í mánaðarlaun en konur, samkvæmt nýrri könnun Hagstofunnar sem við greindum frá í gær. Jafnlaunavottun VR er tæki sem gefur atvinnurekendum færi á að leiðrétta kynbundinn launamun auk þess sem vottunin er sögð geta bætt starfsanda, styrkt ímynd og jafnvel auðveldað fyrirtækjum að fjármagna sig. Fyrstu þrjú fyrirtækin til að hljóta vottunina eru IKEA, ISS Ísland og Íslenska gámafélagið. VR setti sér það markmið að um 30 fyrirtæki og stofnanir fengju vottunina fyrsta árið og segir Stefán Einar Stefánsson, fráfarandi formaður VR, stefna í að það náist. „Ég hef sjálfur sagt að VR eigi að stefna að því að hundrað stærstu fyrirtæki landsins verði öll komin með þessa vottun í árslok 2014 og ég held að það sé raunhæft markmið ef allir leggjast á árarnar með okkur til að vinna á þessu óréttlæti," segir Stefán Einar. Til að hljóta vottunina þurfa vinnustaðir að uppfylla ýmis skilyrði og sýna fram á að fólki sé ekki mismunað í launum með ómálefnalegum hætti. Þeir skuldbinda sig jafnframt til að sæta eftirliti í að minnsta kosti þrjú ár. „Þetta er mikilvægt vegna þess að misrétti á ekki að líðast á vinnumarkaði frekar en annars staðar." Það liggur beint við að spyrja Stefán hvort hann telji flest íslensk fyrirtæki ennþá hafa kynbundinn launamun. „Ég er algjörlega handviss um að svo sé." Samkvæmt niðurstöðum könnunar Hagstofunnar sem birtar voru í gær, er launamunur kynjanna ennþá tæp 23% og sáralítið hefur breyst undanfarin ár.
Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Sjá meira