Lífið

Þessi voru böstuð á árinu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fjölmargar stjörnur komust í hann krappan á árinu og fengu að dúsa á bak við lás og slá – sumar oftar en einu sinni.

Handtakan sem kom hvað mest á óvart var þegar leikkonan Reese Witherspoon og eiginmaður hennar Jim Toth voru handtekin fyrir að keyra undir áhrifum áfengis.

Þá var Erin Brockovich einnig handtekin og spurning hvort leikkonan Julia Roberts verði ekki fengin til að leika í framhaldsmynd um baráttukonuna? Fréttablaðið fór yfir annasamt ár lögreglunnar vestan hafs.

Dina Lohan



Móðir ærslabelgsins Lindsay Lohan var handtekin fyrir að keyra undir áhrifum áfengis í september sem sannar hið forkveðna að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.





Reese Witherspoon og Jim Toth

Aðdáendur trúðu því varla þegar leikkonan Reese Witherspoon og eiginmaður hennar Jim Toth voru handtekin í apríl fyrir að keyra full.







Edward Furlong

Terminator-stjarnan Edward Furlong var handtekin í janúar í þriðja sinn á þremur mánuðum. Hann ýtti við kærustu sinni og var kærður fyrir heimilisofbeldi.





Christopher McDonald

Leikarinn var handtekinn í október í Wilmington fyrir að keyra undir áhrifum áfengis.





Amanda Bynes

Árið hefur verið erfitt fyrir þessa fyrrverandi barnastjörnu sem hefur leitað sér sálfræðihjálpar. Amanda var handtekin margoft, meðal annars fyrir að henda hasspípu út um gluggann á íbúð sinni í New York.





Jenelle Evans

Teen Mom 2-stjarnan hefur verið handtekin næstum því tíu sinnum síðustu þrjú ár. Í ár tók hún meðal annars upp á því að geyma talsvert magn af heróíni í bíl sínum sem löggan fann.





Erin Brockovich

Umhverfisverndaraktívistinn var handtekinn fyrir að sigla bát sínum undir áhrifum áfengis en leikkonan Julia Roberts vann Óskarinn fyrir að túlka baráttukonuna í myndinni Erin Brockovich frá árinu 2000.





DMX

Rapparinn var alls handtekinn fjórum sinnum á árinu, meðal annars fyrir að keyra án ökuskírteinis í Suður-Karólínu með fimm mánaða gamla dóttur sína í bílnum.





https://img.visir.is/apps/pbcsi.dll/bilde?Site=XZ&Date=20131207&Category=PROFILE&ArtNo=131209237&Ref=V5&NoBorder
David Cassidy

Leikarinn úr The Partridge Family keyrði fullur í ágúst. Það sem kom upp um hann var að hann keyrði með háu ljósin þar sem það mátti alls ekki.





https://img.visir.is/apps/pbcsi.dll/bilde?Site=XZ&Date=20131207&Category=PROFILE&ArtNo=131209237&Ref=V6&NoBorder


Pia Zadora


Broadway-leikkonan Pia Zadora var grunuð um að taka sextán ára son sinn hálstaki, kýla stjúpson sinn og klóra eiginmann sinn í Las Vegas í júní.









https://img.visir.is/apps/pbcsi.dll/bilde?Site=XZ&Date=20131207&Category=PROFILE&ArtNo=131209237&Ref=V7&NoBorder


Jason London


Dazed and Confused-leikarinn lenti í slagsmálum á bar í janúar og var handtekinn í kjölfarið. Við það má bæta að lögreglumaður segir að leikarinn hafi kúkað í buxurnar í lögreglubílnum á leiðinni á stöðina.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×