Réttarkerfi Íslendinga er illa haldið Kristinn Guðmundsson skrifar 3. desember 2013 06:00 Embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu sendi mér bréf til ítrekunar á boði um dómsátt. Í ákærunni segir að ég hafi ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu. Málið er þannig vaxið að mér þykir þetta ekki bara mitt einkamál og vil því koma eftirfarandi á framfæri. Umrætt atvik átti sér stað í Gálgahrauni þann 21. október sl. þar sem lögreglu hafði verið falið að fjarlægja fólk af yfirlýstu framkvæmdasvæði vegna fyrirhugaðrar vegarlagningar yfir hraunið. Það er ljóst að ég fór ekki að tilmælum lögregluþjóns sem sagði mér að hafa mig á brott. Ég var staddur á óröskuðu hrauni, utan þess svæðis sem verktakinn hafði afmarkað. Á þessum tíma hafði kæra fjögurra hagsmunasamtaka á hendur vegamálastjóra verið tekin fyrir sem dómsmál, kæra sem dregur í efa lögmæti vegaframkvæmdanna. Ljóst var að tilgangur verktakanna var að framkvæma óafturkræf spjöll á því hrauni sem málið varðar, en því hefur enn ekki fengist svarað hver heimilaði þessa fyrirfram undirbúnu lögregluaðgerð. Við sem vorum þarna stödd vildum, með friðsömum hætti, standa í vegi fyrir ónýtingu kærumálsins. Ég svaraði lögreglunni að ég gæti ekki vikið sökum máttleysis, eitthvað sem óneitanlega svipaði til einkenna sem virtust hrjá réttarkerfið á Íslandi. Þar með var ég borinn af svæðinu. Ég vil að það komi fram að ég þarf ekki að sakast við lögregluþjónana sem báru mig burt því í mínu tilviki unnu þeir sitt verk faglega, sem því miður ekki átti alls við í öllum tilvikum. Ákæru lögreglustjóra hafna ég auðvitað í ljósi þess að nefnd kærumál voru og eru óútkljáð fyrir dómstólum.Breitt yfir ósómann Það hvarflar ekki að mér að taka tilboði um dómsátt og greiða sekt sem jafngildir viðurkenningu á því að hafa breytt rangt í umræddu tilviki. Sáttarboðið lít ég á sem tilraun yfirvalda til að breiða yfir sinn ósóma og koma ábyrgð ásteytinganna yfir á þá sem lögreglan handtók í stað þess að skoða réttmæti valdbeitingar og kúgunar. Ég býst ekki við að nokkur maður skrifi undir slíkt. Á sama tíma fær ráðherra að komast upp með að lýsa því yfir opinberlega í kvöldfréttum RÚV að lögmæti framkvæmdanna sé ekkert álitamál. Það ætti að vera ólíðandi að dómsmálaráðherra fái óáreittur að halda slíku fram meðan fyrrgreint kærumál er til meðferðar hjá dómstólum og að auki tvö önnur dómtekin kærumál sem varða sömu deiluna um lagningu vegar í hrauninu. Dómstólar eru tilgangslausir ef ráðherra getur sagt með þessum hætti fyrir um úrslit málaferla áður en þau eru til lykta leidd í réttarsölum. Því má fullyrða að réttarkerfið þurfi aðhlynningu og ráðherrann aðhald. Að öðrum kosti getur hagræðingarnefndin allt eins bætt því við á lista sína að spara megi þann kostnað sem kerfið útheimtir og hrósað ráðherra fyrir skörulegt framtak og þann dugnað að bæta á sig hlutverki dómara. Nokkru áður en lögreglu var skipað að gangast fyrir umdeildri vegargerð fréttist af fundi með viðkomandi ráðherra þar sem hann hélt því fram að umrætt deilumál væri ekki á sínu borði. Þá var hlegið góðlátlega að málflutningi ráðherra dóms- og samgöngumála við jaðar Gálgahrauns. Allir gátu á sinn hátt skilið þá klaufalegu tilraun til að forðast það að flækjast í þetta vonda mál. En þeir hinir sömu brosa ekki lengur að hlutdeild ráðherrans. Víst er að á hvorn veg sem málaferlin fara, þá liggur beint við að nefna nýjan akveg yfir hraunið eftir slóða sem þarna markar enn fyrir – Sakamannastíg. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Ekki mínir hagsmunir Berglind Hlín Baldursdóttir Skoðun Óásættanleg málsmeðferð Linda Íris Emilsdóttir,Katrín Oddsdóttir Skoðun Samþjöppunin hefur ekkert að gera með veiðigjöldin Sigurjón Þórðarson Skoðun Ætlar vinstri meirihlutinn að skila auðu? Þórdís Lóa Þórhalldóttir Skoðun Hörmulegur atburður í flugstöð Leifs Eiríkssonar Jón Pétursson Skoðun Æfðu þig í virkum og uppbyggilegum viðbrögðum Ingrid Kuhlman Skoðun Fjárfestavernd sem gengur of langt? Baldvin Ingi Sigurðsson Skoðun Aðför Vinnueftirlits að hagsmunum slasaðra. Steinar Harðarson Skoðun Eiga ellilífeyrir og örorkubætur að fylgja launavísitölu? Haukur Arnþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Dóru Björt svarað! Jón G. Hauksson skrifar Skoðun Ísland og hafið: viðbrögð við brotum Ísraels á alþjóðalögum Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Ekki mínir hagsmunir Berglind Hlín Baldursdóttir skrifar Skoðun Ætlar vinstri meirihlutinn að skila auðu? Þórdís Lóa Þórhalldóttir skrifar Skoðun Óásættanleg málsmeðferð Linda Íris Emilsdóttir,Katrín Oddsdóttir skrifar Skoðun Fjárfestavernd sem gengur of langt? Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar Skoðun Æfðu þig í virkum og uppbyggilegum viðbrögðum Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Samþjöppunin hefur ekkert að gera með veiðigjöldin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Aðför Vinnueftirlits að hagsmunum slasaðra. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Karlar, piltar og strákar Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Eiga ellilífeyrir og örorkubætur að fylgja launavísitölu? Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Ísland verður að vernda hafið og fiskimiðin frá námuvinnslu á hafsbotni Laura Sólveig Lefort Scheefer,Þorgerður María Þorbjarnardóttir,Árni Finnsson,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Belén García Ovide,Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Nennið þið plís blessaða ríkisstjórn! Derek T. Allen skrifar Skoðun Ertu klár? Jakob Smári Magnússon skrifar Skoðun Kengúrur eða Þorskar: Hver forritar framtíð Íslands? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Börnin á Gaza eru ekki í fríi Bjarni Fritzson,Blær Guðmundsdóttir ,Elías Rúni Þorsteinsson,Elísabet Thoroddsen,Gunnar Helgason,Linda Ólafsdóttir,Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir,Yrsa Þöll Gylfadóttir skrifar Skoðun Mannréttindi fatlaðs fólks - orð og efndir Unnur Helga Óttarsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Brimrót og veðragnýr í alþjóðamálum Árni Þór Sigurðsson skrifar Skoðun Forstjórinn stígur fram Örn Pálsson skrifar Skoðun Lífsgæði íbúa Mosfellsbæjar skert Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Lestur lykillinn að endurhæfingu? Hvað ef lestur væri lykillinn út? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Tilvera okkar er undarlegt ferðalag Hópur meðlima No Borders skrifar Skoðun Uppbygging í Grafarvogi eflir hverfið og mætir húsnæðiskrísunni á skynsaman hátt Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Það að þrá börn eða ekki Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Tímanna tákn? Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Hörmulegur atburður í flugstöð Leifs Eiríkssonar Jón Pétursson skrifar Skoðun Kvótaverð, veiðigjald, fjárfesting og arðsemi í sjávarútvegi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Getur Seljaskóli núna orðið símalaus skóli, Jóhanna? Kristín Jónsdóttir skrifar Skoðun Gagnsæi og traust á raforkumarkaði Einar S Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ísland og hafið: viðbrögð við brotum Ísraels á alþjóðalögum Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Magnús Magnússon skrifar
Skoðun Ísland verður að vernda hafið og fiskimiðin frá námuvinnslu á hafsbotni Laura Sólveig Lefort Scheefer,Þorgerður María Þorbjarnardóttir,Árni Finnsson,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Belén García Ovide,Huld Hafliðadóttir skrifar
Skoðun Börnin á Gaza eru ekki í fríi Bjarni Fritzson,Blær Guðmundsdóttir ,Elías Rúni Þorsteinsson,Elísabet Thoroddsen,Gunnar Helgason,Linda Ólafsdóttir,Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir,Yrsa Þöll Gylfadóttir skrifar
Skoðun Mannréttindi fatlaðs fólks - orð og efndir Unnur Helga Óttarsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Lestur lykillinn að endurhæfingu? Hvað ef lestur væri lykillinn út? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar
Skoðun Uppbygging í Grafarvogi eflir hverfið og mætir húsnæðiskrísunni á skynsaman hátt Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar