Bréf til bjargar lífi Bryndís Bjarnadóttir skrifar 29. nóvember 2013 00:00 Bréf þín bera árangur. Taktu þátt í bréfamaraþoni Amnesty International og veittu þeim von sem búa við mannréttindabrot um heim allan. Ef þú heldur að það sé gamaldags að skrifa bréf og tilgangslaust að setja blek á blað á tímum Facebook og Twitter, lestu þá þakkarbréf Birtukan Mideksa. „Ég eygði eitt sinn enga von um frelsi. Ég er einstæð móðir og fyrrverandi leiðtogi stjórnarandstöðuflokks í Eþíópíu. Ég var handtekin árið 2005 og dæmd í lífstíðarfangelsi eftir að flokkur minn tók þátt í mótmælum í kjölfar kosninga í landinu. Ég framdi engan glæp. Ráðist var gegn mér fyrir það eitt að ég tjáði pólitískar skoðanir mínar með friðsamlegum hætti. Í raun er ég heppin að vera á lífi. Ég hafði verið í einangrun í Kaliti-fangelsi svo mánuðum skipti þegar þátttakendur í bréfamaraþoni Amnesty komu mér til hjálpar. Þúsundir einstaklinga kröfðust þess að ég hlyti frelsi. Bréf ykkar vernduðu mig á versta tímabili ævi minnar. Þið voruð rödd mín þegar rödd mín heyrðist ekki. Bréf ykkar héldu voninni lifandi þegar neyðin var mest. Það er Amnesty International að þakka að ég hlaut frelsi í október 2010. Ég er svo þakklát fyrir bréf ykkar og aðgerðir í mína þágu. Ég hvet ykkur til að halda áfram lífsbjargarverkum ykkar og grípa til aðgerða í þágu annarra.“ Fleiri þurfa nú hjálpar þinnar við. Taktu þátt í bréfamaraþoni Amnesty og bregstu við 12 áríðandi málum sem þurfa á athygli þinni að halda. Það hefur aldrei verið einfaldara að taka þátt. Tilbúin bréf til stjórnvalda verða á staðnum. Þú getur einnig sent kort til fórnarlamba mannréttindabrota og blásið von í brjóst þeirra. Í ár tekur Íslandsdeild Amnesty International þátt í bréfamaraþoninu í ellefta sinn og fer það fram á 14 stöðum á landinu. Finndu þann stað sem er næstur þér á amnesty.is og vertu með! Við vonum að enginn láti sitt eftir liggja á aðventunni í baráttunni fyrir betri heimi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson Skoðun Skoðun Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Sjá meira
Bréf þín bera árangur. Taktu þátt í bréfamaraþoni Amnesty International og veittu þeim von sem búa við mannréttindabrot um heim allan. Ef þú heldur að það sé gamaldags að skrifa bréf og tilgangslaust að setja blek á blað á tímum Facebook og Twitter, lestu þá þakkarbréf Birtukan Mideksa. „Ég eygði eitt sinn enga von um frelsi. Ég er einstæð móðir og fyrrverandi leiðtogi stjórnarandstöðuflokks í Eþíópíu. Ég var handtekin árið 2005 og dæmd í lífstíðarfangelsi eftir að flokkur minn tók þátt í mótmælum í kjölfar kosninga í landinu. Ég framdi engan glæp. Ráðist var gegn mér fyrir það eitt að ég tjáði pólitískar skoðanir mínar með friðsamlegum hætti. Í raun er ég heppin að vera á lífi. Ég hafði verið í einangrun í Kaliti-fangelsi svo mánuðum skipti þegar þátttakendur í bréfamaraþoni Amnesty komu mér til hjálpar. Þúsundir einstaklinga kröfðust þess að ég hlyti frelsi. Bréf ykkar vernduðu mig á versta tímabili ævi minnar. Þið voruð rödd mín þegar rödd mín heyrðist ekki. Bréf ykkar héldu voninni lifandi þegar neyðin var mest. Það er Amnesty International að þakka að ég hlaut frelsi í október 2010. Ég er svo þakklát fyrir bréf ykkar og aðgerðir í mína þágu. Ég hvet ykkur til að halda áfram lífsbjargarverkum ykkar og grípa til aðgerða í þágu annarra.“ Fleiri þurfa nú hjálpar þinnar við. Taktu þátt í bréfamaraþoni Amnesty og bregstu við 12 áríðandi málum sem þurfa á athygli þinni að halda. Það hefur aldrei verið einfaldara að taka þátt. Tilbúin bréf til stjórnvalda verða á staðnum. Þú getur einnig sent kort til fórnarlamba mannréttindabrota og blásið von í brjóst þeirra. Í ár tekur Íslandsdeild Amnesty International þátt í bréfamaraþoninu í ellefta sinn og fer það fram á 14 stöðum á landinu. Finndu þann stað sem er næstur þér á amnesty.is og vertu með! Við vonum að enginn láti sitt eftir liggja á aðventunni í baráttunni fyrir betri heimi.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar