Á flótta undan eigin ákvörðunum Júlíus Vífill Ingvarsson skrifar 15. nóvember 2013 06:00 Við sjálfstæðismenn í borgarstjórn höfum gagnrýnt harðlega áformaðar gjaldskrárhækkanir sem lagðar voru fram á borgarstjórnarfundi fyrir hálfum mánuði. Við höfum bent á að hækkanirnar myndu koma harðast niður á barnafjölskyldum og að þær væru í engu samræmi við verðlagsþróun. Undir gagnrýni okkar var tekið á vettvangi landsmála og jafnframt hjá samtökum vinnuveitenda og launþega. Forseti ASÍ gekk svo langt að segja að gjaldskrárhækkanirnar væru algerlega galin aðgerð nú þegar viðkvæmar kjaraviðræður væru framundan. Hækkanirnar myndu bitna sérstaklega á einstæðum foreldrum og öryrkjum. Á borgarráðsfundi í gær var tilkynnt að gjaldskrárhækkanirnar væru dregnar til baka. Því ber að fagna að borgarfulltrúar Besta flokks og Samfylkingar hafi áttað sig á hversu alvarlegar afleiðingar ákvarðanir þeirra myndu hafa á fjárhag heimilanna og efnahagslíf þjóðarinnar. Með þeim hefði verið ýtt undir verðbólgu og ófrið á vinnumarkaði með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Heiðarlegast hefði verið af borgarfulltrúum meirihlutans að stíga fram og viðurkenna mistök. Þess í stað er reynt að varpa ábyrgð yfir á þá sem hafa lagt sig fram við að ná sátt á vinnumarkaði. Nú þegar tekist hefur að beygja meirihlutann af leið sinni er reynt að slá ryki í augu fólks. Spuni þess efnis að meirihlutinn sé að leggja sitt af mörkum til að liðka fyrir kjarasamningum er ekki trúverðugur. Meirihlutinn er á flótta undan eigin ákvörðunum og ekki í fyrsta skipti. Flaustursleg vinnubrögð í ráðhúsinu hafa skapað ólgu og óvissu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson Skoðun Skoðun Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Sjá meira
Við sjálfstæðismenn í borgarstjórn höfum gagnrýnt harðlega áformaðar gjaldskrárhækkanir sem lagðar voru fram á borgarstjórnarfundi fyrir hálfum mánuði. Við höfum bent á að hækkanirnar myndu koma harðast niður á barnafjölskyldum og að þær væru í engu samræmi við verðlagsþróun. Undir gagnrýni okkar var tekið á vettvangi landsmála og jafnframt hjá samtökum vinnuveitenda og launþega. Forseti ASÍ gekk svo langt að segja að gjaldskrárhækkanirnar væru algerlega galin aðgerð nú þegar viðkvæmar kjaraviðræður væru framundan. Hækkanirnar myndu bitna sérstaklega á einstæðum foreldrum og öryrkjum. Á borgarráðsfundi í gær var tilkynnt að gjaldskrárhækkanirnar væru dregnar til baka. Því ber að fagna að borgarfulltrúar Besta flokks og Samfylkingar hafi áttað sig á hversu alvarlegar afleiðingar ákvarðanir þeirra myndu hafa á fjárhag heimilanna og efnahagslíf þjóðarinnar. Með þeim hefði verið ýtt undir verðbólgu og ófrið á vinnumarkaði með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Heiðarlegast hefði verið af borgarfulltrúum meirihlutans að stíga fram og viðurkenna mistök. Þess í stað er reynt að varpa ábyrgð yfir á þá sem hafa lagt sig fram við að ná sátt á vinnumarkaði. Nú þegar tekist hefur að beygja meirihlutann af leið sinni er reynt að slá ryki í augu fólks. Spuni þess efnis að meirihlutinn sé að leggja sitt af mörkum til að liðka fyrir kjarasamningum er ekki trúverðugur. Meirihlutinn er á flótta undan eigin ákvörðunum og ekki í fyrsta skipti. Flaustursleg vinnubrögð í ráðhúsinu hafa skapað ólgu og óvissu.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar