Skoðun

Fimm flugur í einu höggi

Björn Jón Bragason skrifar
Harðar deilur hafa risið vegna tillögu vinstrimeirihlutans í borginni að nýju aðalskipulagi, en þar er meðal annars gert ráð fyrir að flugvallarstarfsemi verði hætt í Vatnsmýri. Kostir núverandi flugvallarstæðis og framtíðarmöguleikar eru gríðarlegir og óþarfi að tíunda þá hér.

Sumum andstæðingum vallarins hefur orðið tíðrætt um að rétt væri að flytja völlinn á Bessastaðanes og koma þá upp góðri vegtengingu með brú yfir Skerjafjörð sem kæmi í framhaldi af Suðurgötu og yfir á Álftanes.

Fullkomlega óþarft er að leggja nýjan flugvöll þar suður frá enda flugvallarstæðið í Vatnsmýri afar gott, auk þess sem yfirgengilegur og óréttlætanlegur kostnaður hlytist af lagningu nýs vallar. Hugmyndin um brú yfir Skerjafjörð er hins vegar góð, en með því að reisa brúna yfir á Álftanes ynnist sitthvað:

1. Íbúðabyggðin sem andstæðingar flugvallarins sjá fyrir sér í Vatnsmýri gæti risið á Álftanesi, sem þá yrði í ámóta fjarlægð frá miðbænum og Háaleitið er nú. Borgaryfirvöld gætu einfaldlega gefið Garðbæingum Vatnsmýrarskipulagið.

2. Afar góð vegtenging yrði til milli hinna stóru atvinnusvæða vestarlega í Reykjavík og fjölmennra hverfa í Hafnarfirði og Garðabæ.

3. Þar með myndi létta verulega á öðrum stofnbrautum, svo sem Miklubraut og Kringlumýrarbraut.

4. Fyrirhuguð Öskjuhlíðargöng yrðu óþörf.

5. Enginn þyrfti lengur að halda því fram að nokkru skipti að reisa íbúðarbyggð í Vatnsmýri.

Hér yrðu því slegnar fimm flugur í einu höggi.

Höfundur er sagnfræðingur og gefur kost á sér í 2.-3. sæti á lista sjálfstæðismanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.




Skoðun

Sjá meira


×