Jakob Ehrlich? Gunnar Guðbjörnsson skrifar 25. október 2013 06:00 Drög að fjárlögum gefa fólki í skapandi greinum ekki ástæðu til bjartsýni þótt þakkarvert sé að hlífa lykilstofnunum á menningarsviðinu. Meðal listamanna í grasrótinni er útlitið hinsvegar svart. Jakob Magnússon benti á erfiða stöðu fólks í nýgildri tónlist í grein í Fréttablaðinu síðastliðinn miðvikudag. Ég er sammála Jakobi um nauðsyn á stuðningi við nýsköpun í tónlist og kæri mig kollóttan um hvaða nafni hún nefnist. Hin nýgilda óperutónlist Gunnars Þórðarsonar verður flutt í Íslensku óperunni á næsta ári og í næsta mánuði flytur Sinfóníuhljómsveit Íslands tónlist Skálmaldar. Þar fyrir utan skila fjárfestingar í skapandi greinum, sem öll tónlist tilheyrir, sígild og nýgild, ávinningi hvort heldur það er í krónum eða auknum lífsgæðum. Hinsvegar nær ekki nokkurri átt að kalla „útverði sígildrar tónlistar af þýska skólanum“ helstu óvildarmenn nýgildrar tónlistar. Nýlega birtist ég á skjáum landsmanna og túlkaði söngljóð Schumanns í þættinum Útúrdúr og hlýt því að vera holdgervingur þessara illu afla. Í dag stunda ég umfram allt söngkennslu en horfi satt best að segja með eftirsjá til áranna sem starfandi tónlistarmaður í Þýskalandi, Bretlandi og Frakklandi. Ekki er þar með sagt að slæmt sé að syngja fyrir Íslendinga og vera útvörður sígildrar tónlistar en hinn stórtæki fjárhagslegi stuðningur við störf mín, sem Jakob gefur í skyn, hefur gjörsamlega farið framhjá mér.Í sama fámenni Flytjendur sígildrar tónlistar búa í sama fámenni og hryntónlistarmenn. Markaðurinn er lítill. Undirbúningur tónleikahalds er tímafrekur, tímakaupið við æfingarnar lágt en kröfurnar ekki minni en hjá fjölmennustu þjóðum. Við þurfum flest að stunda önnur störf til að framfleyta okkur og halda svo tónleika í „frítímanum“. Ekki agnúast ég út í Sinfóníuhljómsveit Íslands, alsaklausan Jakob Magnússon eða aðra sem hafa náð góðum árangri á tónlistarmarkaði hér á landi þótt ég hafi ekki átt möguleika á fastráðningu sem söngvari heldur varð að dveljast erlendis til að geta lifað af list minni. Það væri mikil einföldun. Reyndar voru það útgjöld vegna tónleikaferðar Sinfóníuhljómsveitarinnar vestur um haf sem Jakob sá ofsjónum yfir. Með sama hætti má súpa hveljur yfir fjárframlögum til íslenskra leikhúsa og listasafna að ógleymdum stuðningi til framgangs bókmennta. Nú er ekki ljóst hvort Jakob vill skerða hlut tónlistar í fjárlögum almennt með því að skera Sinfóníuna niður við trog, jafna hlut hryntónlistar og sígildrar tónlistar eða auka heildarframlög til tónlistar. Við lestur greinar hans situr einna helst eftir gremja hans yfir því að hafa verið vísað á náðhús í Bandaríkjunum og öfund út í sígilda tónlist. Er hún þó síst öfundsverð en hefur engu að síður verið hryggjarstykkið í uppbyggingu á tónlistarsviðinu. Þótt Stuðmenn séu góðir efast ég um að þjóðin vilji án Beethovens, Verdis og Jóns Leifs vera. Viljum við vera þjóð meðal þjóða verðum við að standa straum af þeim kostnaði sem fylgir sinfóníuhljómsveit, þjóðarleikhúsi, listasöfnum og öðrum nauðsynlegum menningargæðum, m.a.s. þjóðarleikvangi fyrir íþróttakappleiki. Ég vona að stjórnvöld skerði framlög til allrar tónlistar sem allra minnst. Til dæmis óska ég þess innilega að þau sjái sig um hönd og veiti Útflutningssjóði fjármagn til stuðnings nýgildri íslenskri tónlist. Segir sig samt sjálft að tónlistarmaður á borð við mig, sem flytur mestmegnis erlenda tónlist, þarf að leita annarra leiða til að fjármagna kynningar á erlendri grundu. Eitt léti ég mér þó aldrei til hugar koma. Það er að ásælast þá naumlega skömmtuðu fjármuni sem menningarstofnanir eða listamenn í öðrum greinum njóta til að leiðrétta ætlað misrétti gagnvart mér og mínum líkum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson Skoðun Skoðun Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar