Nú er nóg komið – fylkjum liði! Hómfríður Sólveig Haraldsdóttir og Margrét Ingibjörg Ríkarðsdóttir og Elsa María Guðmundsdóttir skrifa 17. október 2013 06:00 Þetta er ákall til kvenfélaga á Íslandi og annarra félagasamtaka sem unnið hafa að uppbyggingu í heilbrigðiskerfinu með gjafafé. Umönnun sjúkra, fatlaðs fólks, aldraðra og stuðningur við þá sem minna mega sín hefur lengst af hvílt á herðum kvenna þessa lands. Meðfram heimilisstörfum og hússtjórn varð það einnig þeirra hlutskipti gegnum aldirnar að sinna veikum og hjálparþurfi inni á heimilunum. Það var fyrir framsýni og hvatningu kvenna að aðstæðum fyrir þessa hópa var breytt – og til hins betra. Fyrstu sjúkrastofnanir landsins og raunar flestar umönnunar- og hjúkrunarstofnanir eru byggðar fyrir hvatningu kvenna og að hluta til fyrir þeirra framlag. Kvenfélög og síðar ýmis önnur félagasamtök, þ.m.t. karlar einnig, hafa um áratugaskeið sinnt hjúkrunarstofnunum landsins með gjafafé. Þetta gjafafé hefur að miklu leyti staðið undir fjármögnun til tækjakaupa hjá flestum eða öllum sjúkrahúsum landsins. Þess vegna hljóta þessi félagasamtök í landinu að hafa eitthvað að segja um niðurskurðaraðgerðir stjórnvalda. Ríkisstjórnin hefur nú lagt til svo blóðugar niðurskurðaraðgerðir að ekki verður við unað. Stöndum vörð um heilbrigðiskerfið – og þær stofnanir sem félagasamtök hafa verið að styðja. Saman getum við fundið leiðir til sparnaðar sem ekki bitna svo harkalega og ósvífið á heilbrigðisþjónustunni í landinu. Leitum leiða og vinnum saman. Við hvetjum kvenfélög og líknarfélög, svo og alla landsmenn til að fylkja liði, þétta raðirnar og mótmæla harðlega. Það verður ekki aftur snúið ef fyrirætlanir ráðamanna ná fram að ganga og þá er viðbúið að umönnunarhlutverkið færist aftur inn á heimili þessa lands. Með öðrum orðum; við hrökkvum áratugi aftur í tímann í heilbrigðisþjónustu. Látum það ekki henda íslenskt samfélag!Hólmfríður Sólveig Haraldsdóttir húsfreyja og ferðamálafræðingurMargrét Ingibjörg Ríkarðsdóttir forstöðumaðurElsa María Guðmundsdóttir, verkefnastjóri og aðstoðarforstöðumaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson Skoðun Skoðun Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Sjá meira
Þetta er ákall til kvenfélaga á Íslandi og annarra félagasamtaka sem unnið hafa að uppbyggingu í heilbrigðiskerfinu með gjafafé. Umönnun sjúkra, fatlaðs fólks, aldraðra og stuðningur við þá sem minna mega sín hefur lengst af hvílt á herðum kvenna þessa lands. Meðfram heimilisstörfum og hússtjórn varð það einnig þeirra hlutskipti gegnum aldirnar að sinna veikum og hjálparþurfi inni á heimilunum. Það var fyrir framsýni og hvatningu kvenna að aðstæðum fyrir þessa hópa var breytt – og til hins betra. Fyrstu sjúkrastofnanir landsins og raunar flestar umönnunar- og hjúkrunarstofnanir eru byggðar fyrir hvatningu kvenna og að hluta til fyrir þeirra framlag. Kvenfélög og síðar ýmis önnur félagasamtök, þ.m.t. karlar einnig, hafa um áratugaskeið sinnt hjúkrunarstofnunum landsins með gjafafé. Þetta gjafafé hefur að miklu leyti staðið undir fjármögnun til tækjakaupa hjá flestum eða öllum sjúkrahúsum landsins. Þess vegna hljóta þessi félagasamtök í landinu að hafa eitthvað að segja um niðurskurðaraðgerðir stjórnvalda. Ríkisstjórnin hefur nú lagt til svo blóðugar niðurskurðaraðgerðir að ekki verður við unað. Stöndum vörð um heilbrigðiskerfið – og þær stofnanir sem félagasamtök hafa verið að styðja. Saman getum við fundið leiðir til sparnaðar sem ekki bitna svo harkalega og ósvífið á heilbrigðisþjónustunni í landinu. Leitum leiða og vinnum saman. Við hvetjum kvenfélög og líknarfélög, svo og alla landsmenn til að fylkja liði, þétta raðirnar og mótmæla harðlega. Það verður ekki aftur snúið ef fyrirætlanir ráðamanna ná fram að ganga og þá er viðbúið að umönnunarhlutverkið færist aftur inn á heimili þessa lands. Með öðrum orðum; við hrökkvum áratugi aftur í tímann í heilbrigðisþjónustu. Látum það ekki henda íslenskt samfélag!Hólmfríður Sólveig Haraldsdóttir húsfreyja og ferðamálafræðingurMargrét Ingibjörg Ríkarðsdóttir forstöðumaðurElsa María Guðmundsdóttir, verkefnastjóri og aðstoðarforstöðumaður
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar