Er fiskeldi æskilegt í Kópavogslæknum? Arnþór Sigurðsson skrifar 12. október 2013 06:00 Sú hugmynd var lögð fram í sumar á hreppskrifstofunni að hefja silungaeldi í Kópavogslæk og var ákveðið að málið yrði skoðað. Hugmyndin er bæði góð og skemmtileg fyrir margar sakir en spurning hvort tímabært sé að framkvæma hana. Kópavogslækur hefur hingað til ekki verið talinn alveg ómengaður en er mun hreinni en hann var þegar skólp rann út í lækinn úr nærliggjandi húsum í áratugi. Nýlega var lögð fram skýrsla um heilbrigði lækjarins og er óhætt að segja að hún sé þess eðlis að lækurinn telst ekki heppilegur til eldis á fiski til manneldis. Einnig hníga rök skýrslunnar að því að fiskur eins og silungur hafi aldrei valið þennan læk til hrygningar og sé því líklegt að skilyrðin í læknum séu ekki heppileg af náttúrunnar hendi. Kópavogslækur var eins og áður segir verulega mengaður en í gegnum árin og áratugina hafa lagnir sem hafa legið í hann verið teknar úr sambandi eða veitt í skólplagnakerfið í Kópavoginum. Þó er talið að ekki sé búið að koma í veg fyrir mengað rennsli í lækinn. Nú í sumar gerðist það að lækurinn varð hvítur að lit og er það ágæt áminning um það að ekki hefur tekist að uppræta mengað rennsli. Kópavogslækur lítur sakleysislega út í dag en til eru sagnir um mikið vatnsrennsli í leysingum og er skrifað í annála að mannskaði hafi orðið er fólk reyndi að vaða lækinn. Hefur það reyndar gerst síðari ár að svo mikið vatn hefur runnið í lækinn í leysingum að yfirborð hans flæddi yfir bakka og voru íbúar í húsum Kópavogsdals varir við vatn í kjöllurum. Ástæðan fyrir því er sú að útrennsli lækjarins við Kópavogsbrúna til sjávar er temprað með lokum og ef ekki er opnað fyrir lokurnar í mikilli vætutíð safnast vatn upp og hann flæðir yfir bakka sína. Þessar lokur eru nefnilega taldar upp sem ein ástæða fyrir því að ekki sé heppilegt að rækta fisk eins og silung í læknum þar sem fiskurinn nær ekki að synda óhindrað upp í lækinn á vorin. Hreppsnefndarmenn í Kópavogi eru hins vegar ekki sáttir við niðurstöður rannsóknarinnar á læknum og ætla að leita leiða til þess að rækta fisk þrátt fyrir að öll rök mæli gegn því. Það er virðingarvert en vonandi mun hreppsnefndin leita leiða til þess að gera lækinn hreinan en reynir ekki að breyta niðurstöðu skýrslunnar sér í hag. Glöggt er gests augað eins og þar stendur og er til vitnis um það bréf sem undirrituðum barst frá íbúa í Kópavoginum sem er af erlendu bergi brotinn. Efni bréfsins var á þá leið að þessi einstaklingur er mikill áhugamaður um veiði og hefur vaktað lækinn í sumar af mikilli natni. Bæði hefur hann prófað að veiða á stöng í læknum og einnig eytt miklum tíma í að ganga meðfram honum og rannsaka hann með augum veiðimannsins. Niðurstöður þessa einstaklings eru nokkuð merkilegar og eru nokkuð í berhögg við skýrsluna um lækinn. Að hans sögn hefur hann veitt nokkra silunga í læknum en sleppt þeim lifandi aftur út í lækinn. Það er hans niðurstaða að það sé nú þegar fiskur í læknum en hann hefur eins og margir áhyggjur af því að vatnið sé ekki nógu hreint og ekki sé þorandi að borða þá fiska sem veiddir eru í læknum. Þessi tíðindi komu mér skemmtilega á óvart, ekki bara vegna þess að skýrslan góða telur lítið sem ekkert af silungi í læknum heldur einnig vegna þess að sjálfur hef ég aldrei séð aðra fiska í læknum en hornsíli. Ef þau tíðindi eru rétt að það sé silungur í læknum, sem ég efast ekkert um, þá væri heppilegt fyrir hina áhugasömu hreppsnefndarmenn að einbeita sér að því að gera lækinn lausan við mengun og huga kannski betur að lokunum sem hindra fiskinn við ósinn en láta náttúruna um afganginn. Þegar lækurinn er kominn með vottorð um að hann sé orðinn heilbrigður væri lag að halda fiskidaginn mikla í Kópavogi einhvern vel valinn sumardag og hvetja íbúa bæjarins að koma að læknum og renna fyrir fisk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Skoðun Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar