Þannig aukum við lífsgæði! Birna Hafstein skrifar 4. október 2013 06:00 Sjálfstæðu leikhúsin (SL), samtök atvinnufólks í sviðslistum á Íslandi, harma þann mikla niðurskurð til sjálfstæðra sviðslistahópa sem boðaður er í fjárlögum 2014. Innan sjálfstæða sviðslistageirans er að finna aðalvaxtarbrodd íslenskra sviðslista, nýsköpun, rannsóknir og tækifæri ungs sviðslistafólks til að láta að sér kveða. Jafnframt er meirihluti allra uppsetninga sjálfstæðra hópa ný íslensk verk sem stuðla að framþróun sviðslista með nýsköpun og frumleika. Sjálfstæðir sviðslistahópar hafa einnig tekið forystu í kynningu á íslenskum sviðslistum á erlendum vettvangi og hafa staðið að markvissri uppbyggingu á alþjóðlegu tengslaneti fyrir tilstuðlan SL og framsækinna sviðslistahópa eins til dæmis Vesturports og Shallala Ernu Ómarsdóttur. Ísland hefur á síðustu árum verið kröftugur vettvangur skapandi greina sem hafa fjölgað störfum og skapað gjaldeyristekjur eins og glöggt má sjá í skýrslu sem unnin var um hagræn áhrif þeirra. Í þeirri skýrslu eru færðar sönnur á mikilvægi skapandi greina sem einnar af helstu tekjulindum íslenska ríkisins. Þessi skýrsla var unnin í samvinnu og með stuðningi allra helstu ráðuneyta. Það er því með öllu óskiljanlegt að ekki sé haldið áfram að byggja upp og styðja við skapandi greinar þegar ljóst er að Ísland þarf að halda áfram að byggja upp atvinnulíf sem byggir á hugviti og sköpunarkrafti. Skapandi greinar eru að stórum hluta lykillinn að því að vekja athygli á Íslandi sem áhugaverðum kosti fyrir ferðamenn. Þær eru grunnur að öflugu menningarlífi, nýsköpun og umbreytingu í atvinnulífi og forsenda fyrir farsælu þjóðfélagi. Stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna– SL hvetur því ríkisstjórn og þingmenn til að draga til baka niðurskurð upp á 24% til starfsemi atvinnuleikhópa í fjárlagafrumvarpi og gefa þeim tækifæri til að halda áfram að byggja upp fjölbreytt og skapandi Ísland. Þannig aukum við tekjur ríkissjóðs – þannig aukum við lífsgæði! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Sjálfstæðu leikhúsin (SL), samtök atvinnufólks í sviðslistum á Íslandi, harma þann mikla niðurskurð til sjálfstæðra sviðslistahópa sem boðaður er í fjárlögum 2014. Innan sjálfstæða sviðslistageirans er að finna aðalvaxtarbrodd íslenskra sviðslista, nýsköpun, rannsóknir og tækifæri ungs sviðslistafólks til að láta að sér kveða. Jafnframt er meirihluti allra uppsetninga sjálfstæðra hópa ný íslensk verk sem stuðla að framþróun sviðslista með nýsköpun og frumleika. Sjálfstæðir sviðslistahópar hafa einnig tekið forystu í kynningu á íslenskum sviðslistum á erlendum vettvangi og hafa staðið að markvissri uppbyggingu á alþjóðlegu tengslaneti fyrir tilstuðlan SL og framsækinna sviðslistahópa eins til dæmis Vesturports og Shallala Ernu Ómarsdóttur. Ísland hefur á síðustu árum verið kröftugur vettvangur skapandi greina sem hafa fjölgað störfum og skapað gjaldeyristekjur eins og glöggt má sjá í skýrslu sem unnin var um hagræn áhrif þeirra. Í þeirri skýrslu eru færðar sönnur á mikilvægi skapandi greina sem einnar af helstu tekjulindum íslenska ríkisins. Þessi skýrsla var unnin í samvinnu og með stuðningi allra helstu ráðuneyta. Það er því með öllu óskiljanlegt að ekki sé haldið áfram að byggja upp og styðja við skapandi greinar þegar ljóst er að Ísland þarf að halda áfram að byggja upp atvinnulíf sem byggir á hugviti og sköpunarkrafti. Skapandi greinar eru að stórum hluta lykillinn að því að vekja athygli á Íslandi sem áhugaverðum kosti fyrir ferðamenn. Þær eru grunnur að öflugu menningarlífi, nýsköpun og umbreytingu í atvinnulífi og forsenda fyrir farsælu þjóðfélagi. Stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna– SL hvetur því ríkisstjórn og þingmenn til að draga til baka niðurskurð upp á 24% til starfsemi atvinnuleikhópa í fjárlagafrumvarpi og gefa þeim tækifæri til að halda áfram að byggja upp fjölbreytt og skapandi Ísland. Þannig aukum við tekjur ríkissjóðs – þannig aukum við lífsgæði!
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar