Laun hækka milli fjórðunga Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. júní 2013 14:00 Ef horft er til launabreytinga milli ára hækkuðu laun á fyrsta ársfjórðungi mest í fjármálastarfsemi, um 7,6 prósent. Mynd/Samsett
lRegluleg laun voru að meðaltali 2,4 prósentum hærri á fyrsta ársfjórðungi 2013 en í ársfjórðungnum á undan, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. „Frá fyrra ári hækkuðu laun um 5,3 prósent að meðaltali, hækkunin var 5,8 prósent á almennum vinnumarkaði og 4,1 prósent hjá opinberum starfsmönnum,“ segir á vef Hagstofunnar. Þá kemur fram að frá fyrri ársfjórðungi hafi laun hækkað mest í iðnaði eða um 3,1 prósent, en minnst í samgöngum og byggingarstarfsemi, um 2,5 prósent. Um leið kemur fram að laun hafi milli ársfjórðunga hækkað um 2,7 prósent í verslun og 2,9 prósent í fjármálaþjónustu. „Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í fjármálaþjónustu eða um 7,6 prósent en minnst í iðnaði eða um 5,2 prósent,“ segir á vef Hagstofunnar. Fram kemur að í vísitölu launa á fyrsta ársfjórðungi 2013 gæti áhrifa hækkana sem kveðið hafi verið á um í kjarasamningum sem undirritaðir voru á árinu 2011. „Í kjarasamningum milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins var kveðið á um almenna hækkun launataxta um 3,25 prósent þann 1. febrúar 2013.“ Þá hafi í kjarasamningum fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna verið almenn hækkun launataxta um 3,25 prósent í mars 2013. „Og í kjarasamningum milli Sambands íslenskra sveitarfélaga við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna var kveðið á um hækkanir á launatöflum frá 1. mars 2013,“ segir í frétt Hagstofu Íslands.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Sjá meira