Táraðist yfir kommentakerfunum Friðrika Benónýsdóttir skrifar 18. maí 2013 17:00 Anna Stella og Sigríður Elín.
Enginn þekkir mann betur en eiginkonan og haft er fyrir satt að það megi ráða í innræti manna af framkomu þeirra við fjölskyldu sína. Samkvæmt því þarf þjóðin ekki að kvíða forsætisráðherratíð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar því eiginkona hans, Anna Sigurlaug Pálsdóttir, segir hann traust ljúfmenni sem alltaf sé til staðar ef vandamál komi upp. "Við Sigmundur kynntumst á gamlárskvöld 2001. Það voru ekki liðnar nema nokkrar mínútur af 2002 þegar ég var orðin heilluð upp úr skónum," segir Anna Sigurlaug Pálsdóttir, mannfræðingur og eiginkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Spurð hvort þetta hafi verið ást við fyrstu sýn svarar hún: "Já, veistu, ég held það bara. Allavega hvað mig varðar. Og ég er alveg heilluð enn þá." Hvað er svona heillandi? "Hann er svo sterkur karakter, eins og fólk er að átta sig á. Hann hefur sterkar skoðanir, er fylginn sér og það er óskaplega gaman að rökræða við hann þó maður þurfi nú stundum að vera dálítið vel undirbúinn til að taka debatt við hann. Hann hefur áhuga á öllu sem við kemur lífinu og tilverunni. Svo líður okkur bara alveg óskaplega vel saman. Við erum bæði týpur sem eiga ekkert yfirþyrmandi mikið af áhugamálum, finnst bara gott að vera saman þegar við eigum frítíma. Við ferðumst mikið, bæði hérna heima og erlendis, og þá tökum við bara einn dag í einu og látum lífið bera okkur áfram. Sigmundur er búinn að smita mig af áhuganum á borgum og húsum og þegar við erum í útlöndum leigjum við okkur oft bíl og keyrum um. Sérstaklega höfum við hrifist af austari hluta Evrópu, Póllandi, Slóvakíu og Slóveníu til dæmis. Þá keyrum við bara um í rólegheitum, skoðum borgir og hverfi og lesum okkur til um sögu lands og þjóðar. Þannig tjúnum við okkur niður og smellum saman í áhuganum á þessu." Anna Stella, eins og hún er alltaf kölluð, segir Sigmund Davíð vera rómantískan og hugulsaman eiginmann. "Hann á það til að vera mjög rómantískur, já. Hann er að vísu stundum svo utan við sig að hann gleymir tyllidögum, en þegar hann man eftir þeim er hann alveg afskaplega rómantískur. Þá undirbýr hann ferðalög eða eitthvað sem hann veit að mér finnst skemmtilegt. Þegar við bjuggum úti í Oxford bauð hann mér til dæmis einu sinni á afmælinu mínu í óvissuferð til Bath. Þá var hann búinn að undirbúa allt út í æsar, ég vissi aldrei hvað var næst á dagskrá."Allt byggt á rökum Ef þú ættir að velja þrjú orð til að lýsa Sigmundi Davíð hver mundu þau verða? "Fyrstu orðin sem koma upp í hugann eru traust og heiðarleiki. Og hlýja. Þótt hann virðist stundum svolítið stífur þá er hann alveg ofsalega mikið ljúfmenni. Það er alltaf hægt að leita til hans ef maður þarf á hjálp að halda. Hann gefur sér alltaf tíma til að hjálpa og hefur skilning á því hvernig öðrum líður. Kannski virkar hann þannig að fólk treystir sér ekki til að leita til hans en þegar á reynir er hann virkilega mikill vinur vina sinna og það er hægt að trúa honum fyrir öllu, hann blaðrar aldrei neinu. Þeir sem þekkja hann minna mundu sennilega nefna skynsemina fyrst, það þarf allt að byggja á rökum. Jafnvel þegar hann er að leysa úr einhverjum tilfinningaflækjum með manni þá notar hann rökhugsunina til að finna lausnir. Það virkar fínt enda gerir hann það á ljúfan og góðan hátt." Öllum sem ég hef talað við ber saman um að hann sé feiminn og hlédrægur, ertu sammála því? "Hann er hlédrægur og finnst voða þægilegt að halda sér til hlés og hlusta á aðra. Ég held kannski að það komi til af því að hann vinnur við að tala og þá finnst honum gott að slaka á með því að leyfa öðrum að hafa orðið án þess að trana sér fram." Hann kom svakalega bratt inn í pólitíkina, hver var aðdragandinn að því? "Það höfðu samband við hann menn að austan, sem höfðu fylgst með því sem hann hafði verið að segja um skipulagsmál, þjóðfélagsmál og fleira, í desember 2008 og hvöttu hann til að ganga til liðs við framsóknarmenn með það að markmiði að taka við formennsku í flokknum. Hann tók þeirri áskorun, við gengum í flokkinn og hann bara hellti sér út í pólitíkina." Var hann aldrei efins um þá ákvörðun? "Nei, það held ég ekki. Hann anar aldrei út í neitt, er yfirleitt búinn að velta hlutunum vel fyrir sér frá öllum hliðum áður en hann tekur ákvörðun. Þegar ákvörðunin er tekin stendur hann við sitt og bakkar ekki."Auðvelt að sitja eftir Það hlýtur að hafa breytt heimilislífinu töluvert mikið þegar hann varð svona áberandi í pólitíkinni? "Ójá, það gerði það. Það er aldrei lognmolla að búa með Sigmundi Davíð, það er alveg á hreinu, en flestallt sem fylgir þessu er bara skemmtilegt. Við erum búin að kynnast alveg rosalega mörgu góðu fólki og eignast fullt af ofsalega góðum vinum í kringum þetta. Þegar hann var að byrja þá hafði ég tækifæri til að ferðast með honum um allt land, enda tilkynnti hann það þegar hann tók við formennsku að hann myndi heimsækja öll aðildarfélög Framsóknarflokksins, sem hann og gerði." Anna Stella og Sigmundur Davíð eiga eina dóttur, Sigríði Elínu, sem er rúmlega árs gömul, það hlýtur líka að hafa breytt töluverðu. Hefurðu ekki minna getað ferðast með honum eftir að hún kom til? "Hún er nú að verða sextán mánaða núna. Og auðvitað hef ég verið meira heima síðan hún fæddist, en ég reyni enn þá að vera með í þessu öllu. Pólitíkinni fylgir mikil vinna og mikil ferðalög og ef maður tekur ekki þátt í því með jákvæðni og gleði þá held ég að það sé auðvelt að sitja svolítið eftir. Þannig að ég tók þá ákvörðun strax í upphafi að vera með og kynnast öllu fólkinu og þegar maður gerir það þá nýtur maður þess bara að vera með í þessu." Hafðirðu tekið þátt í pólitísku starfi áður? "Ekki neitt. Ég hafði auðvitað velt fyrir mér pólitík og tekið ákvarðanir í aðdraganda kosninga um það hvað ég ætlaði að kjósa, en ég hafði aldrei verið í einhverjum flokki eða tekið þátt í stjórnmálastarfi áður. Þetta er allt alveg glænýtt fyrir mér. Það er margt ákaflega skemmtilegt og áhugavert og maður smitast af kraftinum í kringum þetta. Ég myndi samt aldrei sjálf fara að starfa í pólitík, ég hef ekki svo mikinn áhuga."Laumaðist í tölvuna Sviðsljósinu fylgir alls kyns illmælgi og baktal, tekurðu það nærri þér? "Ég gerði það fyrst. Tók þetta alveg óskaplega nærri mér. Ég átti til að laumast í tölvuna á kvöldin og sitja fram eftir nóttu lesandi kommentakerfin með tárin í augunum. Ég bara skildi þetta ekki og langaði helst til að hitta allt þetta fólk og segja því að við værum ekki svona slæm eins og það var að segja. En svo lærir maður af fólki sem er þjálfað í pólitíkinni og fer að brynja sig smám saman. Sigmundur tekur þetta ekkert inn á sig. Hann er alveg gallharður og brynjaður fyrir þessu. Að minnsta kosti þessari illmælgi á kommentakerfunum. Það pirrar hann í almennri umræðu þegar verið er að fara í manninn en ekki málefnin, hann vill að fólk haldi sig við málefnalega umræðu, en hann tekur þetta ekkert nærri sér. Ég er líka orðin harðari af mér og komin á þá skoðun að ef einhverjum finnst ég ekki nógu almennileg eða góð eða eitthvað þá verður hann bara að fá að halda það, ég get ekkert gert í því." Nú ertu væntanlega að verða forsætisráðherrafrú, hvernig leggst það í þig? "Ef ég á að segja þér alveg eins og er þá hef ég lítið sem ekkert hugsað út í það. Þangað til það er orðið staðreynd þá heldur maður bara ró sinni og hefur báða fætur á jörðinni. En ef það verður þá bara setur maður sig í gírinn og tekst á við það. Maður hlýtur að læra til hvers er ætlast af manni og það væntanlega kennir mér einhver til verka, ég hef ekki áhyggjur af því."
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Hvað veistu um... fugla? Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Lífið Fleiri fréttir Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Sjá meira