Breytir sláturhúsi í þriggja stjörnu hótel Kristján Hjálmarsson skrifar 8. maí 2013 06:00 Ólafur Sæmundsson stendur hér við nýja hótelið. Framkvæmdir við það hófust 1. júlí í fyrra en hótelið verður opnað í lok mánaðarins. Mynd úr einkasafni „
Þetta var hlutverkalaust hús í anddyri þorpsins og hafði ekki verið notað síðan rétt fyrir aldamót,“ segir Ólafur Sæmundsson húsasmíðameistari, sem leggur nú lokahönd á nýtt 40 herbergja, þriggja stjörnu hótel við Aðalstræti 100 á Patreksfirði sem verður opnað í lok mánaðarins. Húsið sem um ræðir var byggt á árunum 1938-39 og þá sem frystihús. Árið 1961 var frystigeymsla byggð við húsið en 1981 var frystihúsinu sjálfu breytt í sláturhús. Húsið stóð sem fyrr segir autt til lengri tíma en nú hefur það fengið nýtt hlutverk. Ólafur starfar sem byggingarstjóri en rekstur hótelsins verður í höndum Fosshótela. „Það var ekkert hótel á Patreksfirði fyrir, aðeins gistiheimili,“ segir Ólafur. „Hér eru mikil náttúrundur og mikil náttúra til að sýna en það hefur háð sunnanverðum Vestfjörðum að það hefur ekki verið neitt hótel sem hefur getað tekið á móti stórum hópum. Hér fá allir prívatherbergi með baði og svo verður boðið upp á fínan dinner.“Þegar Ólafur, sem rekur verktakafyrirtækið TVT í félagi við Guðmund Kjartansson húsasmíðameistara, tók við húsinu var það stórt, gluggalaust verksmiðjuhús. Fyrsta verk var því að saga út glugga. Byggingavinnan hefur nú staðið yfir í tæpt ár. Hótelið á að opna 20. maí og það er fullbókað 24. maí. Þetta er ekki fyrsta verkið sem Ólafur kemur að á Patreksfirði. Hann breytti gamla stúkuhúsinu í kaffihús sem hóf rekstur í fyrra. „Hnignunartímabilið hér hófst í kringum árið 1989 en ég hef verið svo heppinn að fá að taka þátt í þessum viðsnúningi. Nú eru tvö laxeldisfyrirtæki sem starfa hér svo það er mikil jákvæðni og gróska í gangi sem á eftir að skapa ný störf og veita fólki atvinnutækifæri.“ Ólafur segir að þegar hrunið hafi orðið á Íslandi hafi fyrirtæki hans ekki horft til Noregs heldur landsbyggðarinnar. „Það er fullt af tækifærum og atvinnuuppbyggingu um land allt og við erum bara að sinna því,“ segir hann. Og Ólafur er stoltur Patreksfirðingur. „Hér er ég fæddur og uppalinn og stoltur af því. Ég hef aldrei farið þó að ég hafi haft viðveru annars staðar. Ég hef komið hingað á hverju ári í verk og viðhald á húsum. Þetta er þorpið mitt, það ól mig upp og fyrir vikið skulda ég því mikið.“
Mest lesið Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Sjá meira