Geiturnar þrjár búa til jógúrt, ís og osta 2. maí 2013 07:00 Berglind Sigmarsdóttir.
Geiturnar þrjár ehf. er nýtt sprotafyrirtæki í Vestmannaeyjum. Að fyrirtækinu standa Berglind Sigmarsdóttir, Ragnheiður Sveinþórsdóttir og Heather Philip. Saman ætla þær að þróa ís, jógúrt og osta til framleiðslu úr geitamjólk. Berglind gaf út bókina Heilsuréttir fjölskyldunnar í fyrra og vinnur nú að framhaldi hennar. Þar mun hún skoða hvernig mataræði hefur áhrif á hegðun barna. Hugmyndin að fyrirtækinu kviknaði í vinnslu bókarinnar. „Ég ræddi við konu sem á dóttur með mjólkuróþol og hún sagði mér frá áhrifum þess að skipta kúamjólkinni út fyrir geitamjólk,“ segir Berglind og vísar til Heather Philip, eins stofnenda Geitanna þriggja, sem hefur flutt inn geitamjólkurduft í talsverðan tíma fyrir dóttur sína. „Duftið er einfaldlega þurrkuð geitamjólk. Engu er bætt í hana né tekið úr. Við ætlum að pakka duftinu í neytendapakkningar og þróa jógúrt, ís og osta til framleiðslu.“ Vörur framleiddar úr geitamjólk geta hentað mörgum þeim sem hafa mjólkuróþol eða -ofnæmi. Berglind segir að með framleiðslunni vilji þær fyrst og fremst gefa fólki val. „Flestir í heiminum drekka geitamjólk, um það bil 65 prósent íbúa heimsins. Kúamjólkin er í raun bara meira áberandi á Vesturlöndunum.“ Geitaræktun á Íslandi er nokkur en ekki nógu mikil til að mjólkurframleiðsla standi undir sér. „Það væri gaman að skoða það síðar en sem stendur kaupum við duftið að utan. Duftið er vottað með stimpli sem kallast QualiGoat og staðfestir að velferð dýranna sé höfð að sjónarmiði sem og gæði framleiðslunnar.“Heather Philip og Berglind Sigmarsdóttir stofnuðu fyrirtækið Geiturnar þrjár ásamt Ragnheiði Sveinþórsdóttur og þróa afurðir geitamjólkur.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Sjá meira