Eftirlit með bótagreiðslum Runólfur Birgir Leifsson skrifar 2. maí 2013 09:00 Almannatryggingakerfið er ein af þeim grunnstoðum sem sameiginlegt velferðarkerfi okkar Íslendinga byggir á. Tryggingastofnun annast viðamikla þætti almannatrygginganna og greiðir árlega um 100 milljarða króna til einstaklinga af skatttekjum ríkissjóðs, en það samsvarar um það bil fimmtungi af fjárlögum ríkisins. Fyrst og fremst er hér um að ræða lífeyrisgreiðslur til ellilífeyrisþega og öryrkja, meðlagsgreiðslur og greiðslur til vistmanna á öldrunarstofnunum. Í hverjum mánuði fá um 55 þúsund einstaklingar greiðslur frá Tryggingastofnun, flestir fá greiðslur mánaðarlega og aðrir sjaldnar. Yfir árið fá um 70 þúsund manns einhverjar greiðslur frá Tryggingastofnun, en það jafngildir ríflega fimmtungi allrar þjóðarinnar. Þegar um svo háar fjárhæðir er að ræða er mikilvægt að fara vel með og hafa hugfast að hér er um að ræða skattfé okkar Íslendinga. Tryggingastofnun annast greiðslur og þjónustu í samræmi við löggjöf sem Alþingi setur og hefur að meginmarkmiði að greiða réttar bætur til réttra aðila á réttum tíma. Almannatryggingakerfið er flókið og býður upp á hættur á mistökum og svikum. Það er því mikilvægt að hafa öflugt eftirlit með bótagreiðslum Tryggingastofnunar, eins og Ríkisendurskoðun hefur nýlega áréttað. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að Tryggingastofnun hafi á undanförnum árum byggt upp eftirlit með bótagreiðslum, en mikilvægt sé að gera enn betur. Til þess þurfi stofnunin auknar eftirlitsheimildir í lögum og aukið rekstrarfé. Vísar Ríkisendurskoðun m.a. til hinna norrænu ríkjanna, sem hafa eflt sitt eftirlit umtalsvert á síðustu árum. Í skýrslunni er einnig tekið dæmi af sænsku tryggingastofnuninni (Försäkringskassan) sem fær um 4% af umfangi útgreiðslna til rekstursins, en rekstur Tryggingastofnunar nemur innan við 1% af umfangi útgreiðslna. Tryggingastofnun hefur verið brautryðjandi íslenskra stofnana í eftirliti með opinberum greiðslum og stefnir að því að gera enn betur.Mistök og svik Eftirlitið felst einkum í því að koma í veg fyrir mistök og svik. Mistök geta átt sér stað með ýmsum hætti t.d. vegna skráningarmistaka hjá starfsmönnum eða rangra upplýsinga frá lífeyrisþegum. Bótasvik eru mun alvarlegri og fela í sér ásetning um lögbrot. Slík svik tengjast oftast rangri upplýsingagjöf um búsetu, sambúðarform og tekjur. Reynslan hefur sýnt að fólk er þá m.a. að svíkja út heimilisuppbót, mæðra-/feðralaun, meðlag og lífeyri. Á síðasta ári voru samtals skráð 616 mál hjá eftirlitinu sem fengu áframhaldandi meðferð eftir skoðun. Flest komu í kjölfar eftirlitsvinnu innan stofnunarinnar, en nokkur eftir utanaðkomandi ábendingar. Í kjölfar efnahagshrunsins var eins og margir hefðu velt meira fyrir sér siðferðisspurningum og meðal annars að ekki væri rétt að sumir kæmust upp með að svíkja út greiðslur sem fjármagnaðar eru af sameiginlegu skattfé okkar. Almenningur var því fyrst á eftir duglegur við að senda stofnuninni ábendingar um hugsanleg bótasvik og hefur það borið góðan árangur. Talsvert hefur dregið úr þessum ábendingum upp á síðkastið, hvort sem það stafar af áhugaleysi eða fækkun bótasvika. Á heimasíðu Tryggingastofnunar, www.tr.is, er að finna ábendingahnapp þar sem hægt er að koma með ábendingar um hugsanleg bótasvik. Talið er að aðeins brot af bótasvikum uppgötvist árlega, en á síðasta ári voru stöðvaðar greiðslur sem nema um 100 milljónum króna á ársgrundvelli. Miðað við erlendar rannsóknir gætu svikin verið miklu umfangsmeiri eða á bilinu 2–3 milljarðar króna. Það er því mikilvægt að styrkja eftirlitsþátt Tryggingastofnunar og tryggja að skattfé okkar verði vel nýtt og fari aðeins til þeirra sem eiga rétt á því.Samstarf við marga Eftirlitseining Tryggingastofnunar á samstarf við marga aðila, bæði innanlands og erlendis. Hér innanlands má nefna lögregluna, Þjóðskrá Íslands, sveitarfélög og Ríkisskattstjóra. Erlendis er fyrst og fremst um að ræða systurstofnanir Tryggingastofnunar í nágrannalöndum okkar. Gott samstarf við erlendar stofnanir er mikilvægt því flutningur lífeyrisþega á milli landa færist í vöxt og hafa meðal annars komið upp tilvik þar sem einstaklingar reyna að fá sambærilegar greiðslutegundir frá tveimur löndum eða leyna erlendum tekjum. Til eru dæmi um einstaklinga á fullum örorkulífeyrisgreiðslum, sem virðast á sama tíma vera í fullri atvinnu erlendis eða í atvinnurekstri. Þeir skrá lögheimili sitt á Íslandi til að halda örorkulífeyri og viðhalda búseturétti vegna ellilífeyris og fleiri réttinda, en telja ekki fram erlendu tekjurnar á skattframtali. Hér er því um að ræða a.m.k. tvöfalt brot sem felst í að skrá rangt lögheimili og leyna erlendum tekjum. Til að geta haldið uppi réttlátu og hagkvæmu lífeyriskerfi, öryggisneti sem grípur okkur ef við lendum í áföllum, þurfum við að standa saman um að koma í veg fyrir bótasvik – allir sem einn. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Stóra myndin í fjárlögum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun Blessuð jólin, bókhaldið og börnin Kristín Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Bréfið sem aldrei var skrifað Grímur Atlason skrifar Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslensk ferðaþjónusta í nýju landslagi Ólína Laxdal skrifar Sjá meira
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar
Skoðun Hugleiðingar úr Dölum um framkomin drög að Samgönguáætlun 2026-2040 Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun