Forgangsröðun í skipulagi borgarinnar Kristinn Karl Brynjarsson skrifar 13. nóvember 2013 06:00 Við gerð aðalskipulags þarf að forgangsraða í þágu ungra fjölskyldna. Þétting byggðar á Hampiðjureit, Þverholti eða við Skúlagötu, fellur vart undir slíka forgangsröðun. Enda verða þessir staðir seint taldir barnvænir. Íbúðir á þessum svæðum henta því betur ungu barnlausu fólki eða þá eldra fólki sem á uppkomin börn. Sama má reyndar segja um íbúðir á slippsvæðinu. Hins vegar gætu íbúðir á Lýsisreitnum verið á mörkum þess að vera í barnvænu umhverfi og henta þar af leiðandi ungu fólki með börn. Forgangsröðun í þágu ungra fjölskyldna á því að stærstum hluta að ganga út á það að setja meiri kraft í uppbyggingu nýrra íbúðahverfa, eins og t.d. Úlfarsárdals. Ásamt því að hugað verði að nýjum svæðum til uppbyggingar, eins og Geldinganesi. Enda lítið svigrúm til þéttingar byggðar í þágu ungra fjölskyldna í rótgrónum barnvænum hverfum borgarinnar. Við gerð aðalskipulags ber að hafa í huga, að miðbærinn er bara eitt af mörgum hverfum borgarinnar. Engu að síður er miðbærinn án efa það hverfi borgarinnar sem hvað flestir borgarbúar og reyndar landsmenn allir sækja ýmsa þjónustu til. Að því leyti má segja að miðbærinn hafi sérstöðu umfram önnur hverfi borgarinnar.Ekki góður kostur Flutningur á stofnunum sem þjóna eiga öllum landsmönnum úr miðborginni í úthverfin er því ekki góður kostur. Enda tryggir nálægð þeirra stofnana við flugvöllinn í Vatnsmýri það, að það landsbyggðarfólk er kemur með flugi og sækir þjónustu þeirra, geti gert það á sem skjótastan og hagkvæmastan hátt. Hraða þarf í miðborginni niðurrifi þeirra húsa er rífa á og hefja strax í kjölfarið byggingu á þeim húsum sem í staðinn eiga að rísa á viðkomandi lóð. Einnig þarf að tryggja það að miðbærinn sé aðlaðandi og stuðla að því að þar þrífist sem fjölbreyttust starfsemi. Aðgengi sé þar fyrir alla og bílastæðamál séu í toppstandi. Við gerð aðalskipulags þarf að tryggja atvinnuuppbyggingu. Hefja þarf hið snarasta, undirbúning og uppbyggingu nýrra svæða undir atvinnulóðir. Nokkrum lóðum mætti úthluta á svæðinu á milli athafnasvæða Eimskipa og Samskipa. Einnig mætti huga að frekari fyllingum við Örfirisey og fylla jafnvel út í Akurey. Enda mjög aðgrunnt þar á milli. Flutningur Björgunar, steypustöðva og jafnvel fleiri fyrirtækja upp á Álfsnes tryggði svo nokkrar atvinnulóðir til viðbótar á þeim svæðum sem þessi fyrirtæki eru nú. Í kjölfar lagningar Sundabrautar og uppbygginu nýs hverfis á Geldinganesi, yrði svo Álfsnesið og jafnvel Esjumelar enn fýsilegri kostur fyrir fyrirtæki að vera með starfsemi sína á. Við gerð aðalskipulags þarf að tryggja aukið umferðaröryggi. Byggja þarf mislæg gatnamót við fjölförnustu gatnamótin sem ekki enn hafa verið gerð mislæg. Fyrst þar í röðinni væru gatnamótin Miklubraut – Kringlumýrabraut og síðar Miklubraut – Grensásvegur. Víða má svo einnig lengja beygjuakreinar, hanna betur af- og aðreinar stofnbrauta og jafnvel bæta við akreinum þar sem þess er kostur, svo umferðin flæði betur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar