Skoðun

Út að leika

Þegar ég var lítil, þá var maður alltaf úti að leika sér. Öll vor-, sumar- og haustkvöld fóru í það að vera í úti í leikjum með krökkunum í hverfinu. Leikir eins og ein króna, hlaupa í skarðið, fallin spýta, snú-snú og skotbolti voru vinsælir og jafnvel í afmælum þegar við nálguðumst fermingaraldurinn var stolist í kyss kyss og út af eða abc.

Á veturna flýtti maður sér svo út í brekku með snjóþoturnar til þess að renna sér, svo ég tali nú ekki um það að labba í skólann í öllum veðrum og klofa snjóinn upp að mitti eða svona hér um bil. Mér finnst þetta hafa breyst aðeins, maður sér ekki mikið af krökkum úti að leika sér í dag, tölvurnar og sjónvarpið heilla oft meira, því miður. Foreldrar eru líka oft of duglegir að skutla börnunum sínum og sækja þau stuttar vegalengdir.

Þegar ég fer út með litla strákinn minn sé ég oft ekki eitt einasta barn úti að leika sér, jafnvel þótt veðrið sé gott og ekkert því til fyrirstöðu að vera úti. Ég held að það sé á ábyrgð okkar foreldranna að vera dugleg að senda börnin okkar út og jafnvel að fara með þeim, við höfum öll gott af því. Úr því getur orðið skemmtileg fjölskyldustund þar sem hægt er að kenna börnunum nýja leiki og styrkja böndin enn frekar. Fyrir unglinga í fjölskyldunni sem ekki þykir mjög smart að vera úti að leika með gamla settinu er hægt að fara í göngu- eða hjólaferðir og jafnvel setja sér það markmið að ganga nokkur fjöll í nágrenninu. Slíkar samverustundir geta líka haft mikið forvarnargildi.

Það er þó ekki orðið svo slæmt að það séu aldrei nein börn úti að leika sér, síður en svo. Það hefur hins vegar minnkað töluvert og það er ekki jafn mikið líf og fjör í kringum það eins og var. Sum börn elska að vera úti og eru dugleg við það en ég hef líka séð börn „úti að leika“ sem sitja með símann í höndunum og eru í tölvuleik. Eins veit ég um einn sem fannst hann hafa fengið nógu mikið af fersku lofti við það að hafa herbergisgluggann opinn meðan hann var í tölvunni, þegar móðir hans var að segja honum að hætta að spila og fara út að fá sér ferskt loft.

Mín kynslóð sem er þrjátíu plús ólst upp við það að vera mikið úti að leika eins og áður hefur komið fram. Núna sér maður mikið af alls konar hópum sem eru að koma saman til þess að spila skotbolta eða bara fara út í leiki eins og í gamla daga, sem er mjög jákvætt. Það er hollt að leika sér úti, bæði fyrir sál og líkama.

Gerum sjálfum okkur og börnunum okkar greiða. Sendum þau út og förum með þeim út að leika.




Skoðun

Sjá meira


×