Tónlist

Gefa sjálfir út plötuna erlendis

Hljómsveitin gefur sjálf út plötuna sína úti í heimi.
Hljómsveitin gefur sjálf út plötuna sína úti í heimi. Mynd/Magnús Andersen
Þriðja hljómplata Retro Stefson, sem er samnefnd hljómsveitinni, kemur út í Evrópu og Bandaríkjunum í mars á vegum Les Frères Stefson, sem er útgáfufélag Retro Stefson. Hún kemur út í samstarfi við breska fyrirtækið Republic of Music sem annast framleiðslu, dreifingu og markaðssetningu.

Risinn Universal í Þýskalandi, nánar tiltekið Vertigo, mun því ekki gefa plötuna út. Samningur var gerður um plötuna Kimbabwe og var hann ekki endurnýjaður.

Í kjölfar útgáfunnar heldur Retro Stefson í tveggja mánaða tónleikaferð um Evrópu til að fylgja henni eftir. Fyrstu tónleikarnir verða í Kennedy Center í Washington og eftir það er förinni heitið til Evrópu. Fyrst spilar hljómsveitin á bransahátíðinni by:Larm í Noregi 13. og 14. febrúar og daginn eftir á Sónar-hátíðinni í Reykjavík. Í maí er förinni heitið til Austur-Evrópu og síðan á fjölmargar tónlistarhátíðir í Evrópu.

Retro Stefson var tilnefnd til sex verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaunum fyrir nýjustu plötu sína, auk þess að vera tilnefnd til Norrænu tónlistarverðlaunanna. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×