"Ég er sko vinur þinn“ - Göngum gegn einelti Ármann Kr. Ólafsson skrifar 8. nóvember 2013 06:00 Í þriðja sinn verður dagurinn 8. nóvember helgaður baráttunni gegn einelti og í Kópavogi verður gengið gegn einelti í öllum skólahverfum bæjarins. Þetta er í fyrsta sinn sem bærinn tekur þátt í þessum táknræna baráttudegi með svo afgerandi hætti. Börn og unglingar frá öllum leikskólum, grunnskólum og félagsmiðstöðvum ætla að ganga stuttan spöl og halda á hvatningarspjöldum þar sem minnt verður á að einelti eigi aldrei að líðast. Að göngu lokinni verða ýmsar uppákomur í skólum bæjarins, þar sem m.a. verður sungið Disney-lagið: „Ég er sko vinur þinn.“ Tillaga mín um eineltisgönguna var lögð fram í sumar og var hún samþykkt einróma. Markmiðið er að vekja athygli á skaðsemi eineltis og hvetja foreldra, börn og unglinga til þess að halda vöku sinni og hrekja þennan óvin á flótta. Rannsóknir sýna að einelti getur byrjað svo snemma sem í leikskóla og flest ef ekki öll vitum við um einstaklinga sem líða fyrir einelti í æsku. Við vitum líka að einelti getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Því er mikilvægt að vel sé haldið á þessum málum hjá sveitarfélögunum, ekki bara í grunnskólunum heldur líka í leikskólunum og félagmiðstöðvum. Skólar í Kópavogi hafa á liðnum árum unnið markvisst gegn einelti og samþykktar hafa verið eineltisáætlanir fyrir grunnskóla og leikskóla. Sömuleiðis hefur verið samþykkt eineltisstefna fyrir starfsmenn bæjarins en þar má m.a. finna leiðbeiningar um það hvernig bregðast eigi við ef einelti kemur upp. Mikilvægt er að fylgja slíkum áætlunum eftir með forvörnum, fræðslu og upplýstri umræðu. Eineltisgangan í dag er liður í því. Einelti er þó ekki bara bundið við skólana heldur þurfum við að vera meðvituð um að einelti getur birst hvar sem er í samfélaginu, á vinnustöðum, í félagsmiðstöðvum eða á sumarnámskeiðum svo dæmi séu nefnd. Síðast en ekki síst þurfum við þó sem foreldrar, forráðamenn, kennarar, bæjarstjórar eða aðrar fyrirmyndir að líta í eigin barm og huga að því hvers konar skilaboð við sendum til yngstu kynslóðarinnar. Tökum öll höndum saman í dag og látum þennan dag vekja okkur til umhugsunar um gildi vináttu og jákvæðra samskipta. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Ástþór Magnússon í spádómum? Gunnar Karl Halldórsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira