Frumheilsugæsla Þorvarður Brynjólfsson skrifar 4. febrúar 2013 06:00 Heilbrigðisþjónusta sem byggist á jafnrétti er grundvallarmannréttindi. Heilsusamlegt umhverfi og góður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu eru meðal mikilvægustu réttinda einstaklinga og það er hagur hvers samfélags að stuðla að góðri heilsu almennings og hlúa vel að þeim sem tapa heilsu. Í nokkur ár hefur verið rætt um að flytja heilsugæsluna til sveitarfélaganna en minna hefur verið rætt um hvernig þeirri yfirfærslu yrði háttað. Almenn umræða um stöðu heilsugæslunnar hefur ekki heldur verið mikil og yfirvofandi skortur á heilsugæslulæknum hefur ekki fengið verðskuldaða athygli. Samkvæmt svari ráðherra við fyrirspurn á Alþingi í janúar 2010 vantaði 27 lækna til að manna lausar stöður heilsugæslulækna á Íslandi og bendir fátt til að heilsugæslulæknum hafi fjölgað síðan þá. Stöður heilsugæslulækna eru ekki í öllum tilfellum mannaðar sérhæfðum heilsugæslulæknum en samkvæmt upplýsingum frá velferðarráðuneytinu eru nú 36 stöður mannaðar af læknum í framhaldsnámi og algengt er að læknar sinni fleiri heilsugæslustöðvum í hlutastörfum eða nota vaktafrí til að bjarga málum þar sem skortur er mikill.Fastlæknakerfi Í leit að fyrirmyndum má skoða norska kerfið en fyrir 8-9 árum var ?fastlæknakerfið? tekið upp í Noregi með breytingu á lögum. Þar var sett í lög að allir íbúar Noregs hefðu rétt á að hafa sinn fasta lækni (ekki heimilislækni þar sem fjölskyldumeðlimir þurfa ekki að hafa sama lækni). Bæjarfélögin voru gerð ábyrg fyrir því að fá lækna til að starfa og á fáum mánuðum hvarf skorturinn á heimilislæknum. Sveitarfélög í Noregi hafa útfært heilsugæsluna á ólíkan hátt. Á sumum stöðum rekur bærinn heilsugæslustofuna, borgar læknunum föst laun og vissa prósentu fyrir unnin störf. Það kerfi hefur verið vinsælt og gefið góða raun. Vaktir eru fyrir utan þetta kerfi og fyrir þær er greitt sérstaklega af bænum og Tryggingastofnun. Þar sem sveitarfélagið sjálft sér ekki um að reka heilsugæsluna fær læknirinn fasta upphæð fyrir hvern einstakling á hans lista frá bæjarfélaginu og frá tryggingastofnunum fyrir unnin störf, en læknirinn/læknarnir greiddu svo fyrir allan kostnað við reksturinn. Uppbygging norsku þjónustunnar er þannig að hver heilsugæslulæknir hefur ákveðinn fjölda íbúa sem hann ber ábyrgð á, bæði í almennri heilsugæslu og í bráðatilvikum (á vinnutíma). Ekki er vísað á vaktina eða sjúkrahúsþjónustu eins og of oft er gert á Íslandi. Ríkið greiðir sveitarfélaginu fasta upphæð samkvæmt íbúafjölda, Tryggingastofnun heldur utan um listana og sendir lækninum og bænum mánaðarlega breytingar á listunum.Biðlistar hurfu Við þessar breytingar hurfu biðlistar í Noregi og hægt var að létta miklu álagi af sjúkrahúsunum og greiðslur ríkisins til sérfræðinga minnkuðu mikið. Samkvæmt rannsóknum erlendis leysa frumheilsugæslulæknar um 85% þeirra vandamála sem upp koma hjá íbúum og er áhugavert að vita hversu mörg þessara mála lenda beint hjá sérfræðingum og bráðamóttökum hér á landi. Þegar sveitarfélögin í Noregi voru skyldug til að veita íbúum sínum læknisþjónustu fór talsverð vinna og kostnaður í að fá heilsugæslulækna til starfa. Norðmenn sóttu lækna frá Hollandi, Þýskalandi og Danmörku, héldu námskeið í norsku, aðstoðuðu nýja lækna við að útvega sér húsnæði, pláss á leikskólum og aðstoðuðu maka við að fá vinnu.Góður árangur Í Noregi hefur nýja heilsugæslukerfið reynst vel. Þótt íslenskar aðstæður séu ekki fyllilega sambærilegar þeim norsku er það trú okkar að norska kerfið yrði til að bæta til muna íslenska heilbrigðiskerfið og nýta betur það fjármagn sem í því er. Smæð íslenskra sveitarfélaga og fjarlægð á milli myndi þó vafalaust kalla á smærri stöðvar á landsbyggðinni en þar gæti samvinna milli stöðva hjálpað mikið á flestum stöðum, sérstaklega við að manna vaktir. Miklu skiptir að læra af verkefnum sem vel hafa gengið og skilað góðum árangri. Við þurfum að hverfa frá því að vísa verkefnum frumheilsugæslunnar til sérfræðinga en líta frekar heildrænt á málið út frá lýðheilsusjónarmiðum. Frumheilsugæsla leggur áherslu á að gripið sé fljótt inn í ef eitthvað er að og að ráðist sé að rót vandans í stað þess að elta uppi einkennin. Í frumheilsugæslunni er því ekki aðeins sinnt veikindum heldur er byggt á forvarnarstarfi í samvinnu við sveitarfélög og stofnanir innan þeirra og þannig lögð áhersla á að ná til allra hópa samfélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar