Upplifði martröð hljóðfæraleikarans Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 25. maí 2013 17:25 Ómar hefur ekki snúið baki við hnífnum, en ætlar að passa sig við eldamennskuna héðan í frá.
Gítarleikarinn Ómar Guðjónsson fór heldur óvarlega í matseldinni á dögunum og skar næstum því af sér fingurinn. Það var sæt kartafla sem varð þessum fingrafima listamanni að falli. „Ég var eins og svo oft áður að undirbúa einhvern kvöldmat og var nýbúinn að kaupa mér svona japanska sveðju, hníf með risastóru blaði,“ segir Ómar sem hafði lengi dreymt um hníf af þessu tagi. „Svo var ég í Þýskalandi og ákvað að láta slag standa. Og síðan daginn eftir var ég kominn heim og að elda, og nota hnífinn í allt, ekki bara það sem á að nota hann í. Ég fór því í sætu kartöflurnar og þá gerðist þetta. Ég hélt utan um sæta kartöflu og skar með hægri og þá datt hnífurinn einhvern veginn skakkt af kartöflunni í einhverjum átökum og beint inn í litla puttann á vinstri,“ segir Ómar sem er rétthentur. Ómar segir að hnífurinn hafi farið í gegn um hluta af sin og til að byrja með vissi hann hreinlega ekki hvort puttinn hefði farið af eða ekki. „Ég vissi ekki hvort hann var af eða á þegar ég var á leiðinni upp á spítala, búinn að vefja einhverju utan um þetta í algjöru sjokki.“ Ómar var saumaður og settur í gifs, og þurfti að gefa fingrinum langt frí, en læknar segja að hann muni ná sér að fullu. „Ég er búinn að taka Eric Clapton á þetta undanfarið og sleppa litla putta,“ segir Ómar, sem hefur þó ekki snúið baki við hnífnum, en ætlar þó að passa sig við eldamennskuna héðan í frá. „Ég ætlaði að senda lækninum hnífinn en svo hafði ég það ekki í mér. En ég mun ekki nota hann í annað en það sem hann er ætlaður fyrir. Þetta er búið að vera mín martröð frá fermingu, að skera af mér puttana. Við erum öll svo stutt frá þessu. Maður þarf ekki annað en að gleyma sér aðeins í eldhúsinu. Annars held ég að pabbi sé að leita að svona kjötiðnaðarhanska fyrir mig, svona stálgrifflu.“
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun „Erum bara vinir“ Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Fleiri fréttir Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“