Fríverslun við Asíuríki í sjónmáli Jón Ágúst Þorsteinsson skrifar 23. febrúar 2013 06:00 Í framsögu fyrir skýrslu sinni um utanríkismál á Alþingi nýlega ræddi Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um fríverslunarsamninga við ríki í Asíu. Í máli hans kom fram að fríverslunarsamningur við Kína bíður nú undirritunar, en Ísland sé einnig langt komið með slíkan samning við Indland gegnum EFTA, og áleiðis við sólrisuríki í Suðaustur-Asíu eins og Malasíu og Víetnam. Hér er um gríðarmikla hagsmuni að ræða fyrir íslenskt atvinnulíf í bráð og lengd. Það er álitið að á næstu þremur áratugum verði 80% af aukningu heimsviðskipta í Asíu og að spurn eftir hátækni, hugbúnaði og tæknilausnum muni fara hraðvaxandi í þessum heimshluta. Það er því eftir miklu að slægjast þegar lögð eru drög að því að greiða fyrir viðskiptum Íslendinga við Asíubúa.Vernd hugverkaréttinda Marorka hefur á síðustu árum sótt inn á Asíumarkað meðal annars með því að setja upp sölu- og þjónustuútibú í Dubai og á áætlun er að setja starfsstöð upp í Kína þar sem Kína er einn stærsti skipamarkaður í heimi. Slík erlend starfsemi kemur til með að efla alla okkar starfsemi á Íslandi. Samningar um fríverslun við hin fjölmennu ríki SA-Asíu, sem eru vaxandi efnahagsveldi, eru að sjálfsögðu mikilvægir vegna niðurfellingar á tollum sem þeim fylgja. En þýðing þeirra felst ekki síður í ákvæðum um góða viðskiptahætti sem samningarnir kveða á um. Þannig er okkur sagt að í fríverslunarsamningi við Kína séu upprunareglur sem skýra hvaða skilyrði vara þarf að uppfylla til þess að teljast upprunnin á Íslandi eða í Kína. Einnig að lögð sé áhersla á samstarf í umhverfismálum. Þá sé eitt af markmiðum samningsins að búa vel að vernd hugverkaréttinda eins og áríðandi er í samskiptum þjóða. Þar sé gengið lengra en tíðkast í fríverslunarsamningum EFTA til þess að Kína og Ísland geti leyst úr vandamálum sem upp koma á þessu sviði í tvíhliða samskiptum.Umhverfismál mikilvæg Öll þessi atriði eru fyrirtæki eins og Marorku ákaflega mikilvæg í viðskiptum við Asíulönd. Upprunareglur og vernd hugverkaréttinda eru lykilatriði þegar verið er að selja hugvit og hugbúnað á fjarlægum svæðum þar sem lagaumhverfi og viðskiptavenjur eru um margt frábrugðnar því sem við eigum að venjast. Marorka er fyrst og fremst að selja tæknilausnir til þess að draga úr umhverfismengun og spara dýra orku og eldsneyti. Víða í Asíulöndum, ekki síst í Kína, þarf að leysa úr margskonar umhverfisvanda og er mikil áhersla lögð á það af stjórnvöldum þar. Þess vegna styður það við sókn Marorku á Kínamarkað að umhverfismál skuli tiltekin sérstaklega í fríverslunarsamningi. Mörg önnur atriði tilheyra umgjörðinni um frjáls viðskipti við Kína en ekki er rúm til þess að gera þeim skil í stuttri grein. Kína er á margan hátt stærsti framtíðarmarkaður Marorku. Þar er mesta skipasmíði og skiparekstur í heimi um þessar mundir. Margs konar tækifæri fyrir fyrirtæki eins og Marorku bjóðast í tengslum við skipaumsvifin og sívaxandi áherslu á umhverfismál. Þar koma einnig við sögu spennandi áform um siglingar beint um norðurskautið. Kína er einnig sístækkandi miðstöð Asíuviðskipta og þaðan er hagkvæmt að stýra sölustarfi í SA-Asíu Fríverslunarsamningur við Kína mun gefa íslenskum tæknifyrirtækjum færi á að sækja inn á Asíumarkað með vörur sínar og lausnir. Í því felast vaxtartækifæri sem meta má til hundraða milljarða króna á næstu árum, og geta skilað verðmætum störfum og mikilli arðsemi til samfélagsins á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar