Uppgjör hjá Alfreð og Degi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2013 06:30 Alfreð Gíslason.
Íslendingaliðin Füchse Berlin og THW Kiel mætast á morgun í toppslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta en liðin eru bæði með 26 stig í 2. og 3. sæti deildarinnar. Þjálfarar liðanna eru þeir Dagur Sigurðsson hjá Füchse og Alfreð Gíslason hjá Kiel. Leikurinn hefst klukkan 14.00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 en það er búist við troðfullri höll og mikilli stemmningu. „Við erum ekki oft litla liðið á heimavelli en það er þannig í þessum leik. Ég myndi vera sáttur við jafntefli,“ sagði Dagur í viðtali við BZ. Refirnir hans Dags Sigurðssonar hafa unnið sjö leiki í röð í deild og Evrópukeppni og hafa ekki tapað síðan á móti HSV Hamburg 27. október síðastliðinn. Þeir koma því fullir sjálfstraust inn í leikinn. Kiel hefur aðeins tapað einu sinni í síðustu sex deildarleikjum sínum og það tap kom í toppbaráttuslag á móti Flensburg fyrir tveimur vikum. Þetta verður í þrettánda sinn sem Alfreð og Dagur mætast sem þjálfarar þessara tveggja liða í deild, bikar eða Evrópukeppni. Tölfræðin úr þeim leikjum er ekki hagstæð fyrir Dag og lærisveina hans enda hefur hann aðeins einu sinni náð að fagna sigri á Alfreð. Sá sigur kom í deildarleik 19. september 2010 en Füchse Berlin vann þá 26-23. Füchse náði jafntefli á móti Kiel í heimaleiknum í fyrra en Alfreð hefur aftur á móti fagnað sigri í hinum tíu leikjunum. Þetta verður fyrsti leikurinn síðan Alfreð var valinn besti þjálfari heims annað árið í röð. „Ég vona að vörnin verði traust og markverðirnir okkar eigi góðan dag. Það verður að ganga eftir ef við ætlum að vinna Kiel,“ sagði Dagur.
Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Fótbolti Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fótbolti Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira