Auðvelt hjá PSG í Sviss | Kolding fyrst til að vinna Kielce Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 17. nóvember 2013 18:10 MYND/HSÍ
PSG átti ekki í neinum vandræðum með Wacker Thun í Sviss í dag í Meistaradeildinni í handbolta og vann öruggan 6 marka sigur 34-28 á botnliði C-riðils. Á sama tíma skellti Kolding Kielce í Danmörku 29-24. PSG náði fljótt öruggu forskoti í leiknum í Sviss og var leikurinn í raun aldrei spennandi. Sex mörkum munaði í hálfleik 16-10 og nær komst Thun aldrei. Róbert Gunnarsson skoraði tvö mörk í leiknum en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað. Fahrudinn Melic var markahæstur hjá PSG með sjö mörk. Antonio Garcia og Marko Kopljar skoruðu fimm mörk hvor. Reto Friedli skoraði sex mörk fyrir Thun og Lukas Von Deschwanden fimm. PSG er í fjórða sæti riðsilsins með fimm stig, með stigi meira en Dinamo Minsk og stigi á eftir Metalurg. Wacker Thun er á botninum án stiga. Danska liðið Kolding frá Kaupmannahöfn gerði sér lítið fyrir og skellti Targi Kielce frá Póllandi 29-24 í Danmörku í dag. Fyrir leikinn var Kielce með fullt hús stiga en Kolding hafði tapað einum leik líkt og Kiel í riðlinum. Það er ekki spurt að því þegar inn á völlinn er gengið og var Kolding mikið sterkari aðilinn í leiknum. Kolding var 17-12 yfir í hálfleik og hleypti Kielce aldrei það nálægt sér að leikurinn yrði spennandi. Albert Rocas var markahæstur hjá Kolding með 8 mörk. Bo Spellerberg skoraði 7 mörk og Stefan Hundstrup 5. Ivan Cupic skoraði mest fyrir Kielce, 6 mörk og Michal Jurecki 4. Þórir Ólafsson náði ekki að nýta færi sín í leiknum og skoraði ekki. Liðin eru jöfn á toppi B-riðils með átta stig í fimm leikjum.
Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira