Fæðuöryggi og breytt veðurfar – kemur það okkur við? Áslaug Helgadóttir skrifar 20. nóvember 2013 09:34 Áhrif fellibylsins Haiyan á Filippseyjum vekja ugg um afleiðingar loftslagsbreytinga á velferð mannkyns. Nýjasta skýrsla vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) frá því í september tók af allan vafa um að breytingarnar eru af mannavöldum. Svo virðist þó að þjóðir heims fljóti sofandi að feigðarósi og erum við Íslendingar þar engin undantekning. Helst virðast menn vakna upp við vondan draum þegar veðurhamfarir ganga yfir líkt og nú eða þegar fellibylurinn Sandy skall á austurströnd Bandaríkjanna í fyrra. En hætturnar leynast víða. Vísindanefndin undirbýr nú skýrslu um áhrif loftslagsbreytinga á fæðuöryggi í heiminum sem væntanleg er í mars á næsta ári. Í drögum að skýrslunni kemur fram að reikna má með tveggja prósenta samdrætti í uppskeru á hverjum áratug á okkar helstu nytjajurtum eins og maís, hveiti og hrísgrjónum. Þetta eru slæmar fréttir einkum í ljósi þess að áður hefur verið áætlað að auka þurfi fæðuframboð um 14 prósent á hverjum áratug til þess að halda í við fólksfjölgun í heiminum. Væntanleg rýrnun í uppskeru er meiri og hraðari en í fyrri skýrslum nefndarinnar og það er því ekki verið að tala um hvað geti gerst á því fjarlæga ári 2100 heldur eftir 20 til 30 ár. Á Íslandi gleðjast margir yfir hlýnandi árferði og mun landbúnaður hér, eins og víðar á norðurslóð, vissulega að einhverju leyti njóta góðs af. Hér verður ef til vill hægt að rækta nýjar tegundir nytjajurta sem áður hefur reynst erfitt eða jafnvel ómögulegt, til dæmis korntegundir eins og bygg, hafra og hveiti. Nú sér íslensk landbúnaðarframleiðsla okkur fyrir um helmingi af öllum þeim hitaeiningum sem við þurfum okkur til lífsviðurværis. Með hlýnandi veðurfari gæti þetta orðið meira. Það er gott og að því ber að stefna.Hefjumst handa núna Í áðurnefndum skýrsludrögum IPCC er vissulega getið um jákvæð áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóð en neikvæð áhrif eru því miður miklu algengari. Breytt loftslag mun setja ræktun nytjajurta skorður og sveiflur í uppskeru milli ára munu aukast og það ekki síður hér en annars staðar. Á norðurslóðum er fyrirsjáanlegt að breytingar verði á útbreiðslu skordýra og plöntusjúkdómar verða vaxandi vandamál, nokkuð sem íslenskir bændur eru óvanir að eiga við. Þessar breytingar munu óhjákvæmilega leiða til verðhækkana og næsta öruggt er að fátækar þjóðir verða verr úti en við sem búum við mikla velmegun á Vesturlöndum. Hjá okkur er fæðuöryggi ekki á dagskrá, þvert á móti. Víða í löndum Evrópusambandsins hefur markvisst verið dregið úr uppskeru á undanförnum árum og framleiðslugeta landsins hefur langt í frá verið fullnýtt. En við skulum ekki gleyma því að núna er hátt í milljarður manna vannærður og stór hluti þess hóps er börn. En enginn er eyland, allra síst Ísland þegar kemur að fæðuöryggi. Þjóðir heims eru tengdar saman í flókinn fæðuvef og landbúnaðarvörur flæða um heiminn þveran og endilangan. Það kemur okkur því við hvað gerist í fjarlægum heimshornum í náinni framtíð. Það er ekki of seint að leita allra leiða til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og hamla þannig gegn enn frekari loftslagsbreytingum. Ef við grípum til aðgerða nú munu afkomendur okkar njóta þess á síðari hluta þessarar aldar. Stjórnvöld og almenningur á Íslandi verða að leggja sitt af mörkum til þess að þetta markmið náist. Á sama tíma er mikilvægt að bregðast við með auknum rannsóknum til að milda þau áhrif sem loftslagsbreytingar munu án efa hafa á fæðuframleiðslu á komandi árum. Við þurfum að hefjast handa ekki seinna en núna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir Skoðun Aftur á byrjunarreit Hörður Arnarson Skoðun Norðurlandamet í fúski! Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun „Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu? Viðar Halldórsson Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson Skoðun Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið! Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi Skoðun Netöryggi til framtíðar Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng Katrín Sigurðardóttir Skoðun Ursula von der Leyen styður þjóðarmorð! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar Skoðun Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng Katrín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið! Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi skrifar Skoðun Linsa Lífsins Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun „Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu? Viðar Halldórsson skrifar Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Netöryggi til framtíðar Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Aftur á byrjunarreit Hörður Arnarson skrifar Skoðun Norðurlandamet í fúski! Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ursula von der Leyen styður þjóðarmorð! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Ég vona að þú gleymir mér ekki Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Flugnám - Annar hluti: Afskiptaleysi stjórnvalda Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson Skoðun
Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson Skoðun
Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar
Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar
Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar
Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson Skoðun
Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson Skoðun