Ágæti alþingismaður Herdís Halldórsdóttir og Maggý Magnúsdóttir og Þórunn Halldórsdóttir skrifa 19. desember 2013 07:00 Við viljum vekja athygli þína á því að jafnlaunaátak ríkisstjórnarinnar sem samþykkt var í janúar 2013 nær ekki til Reykjalundar og hefur því frekar aukið á ójöfnuð innan heilbrigðistétta en jöfnuð. Staðan er sú að Landspítali, Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurlands hafa fengið fjármagn til að hækka laun starfmanna sinna í skilgreindum kvennastéttum í gegnum stofnanasamninga í þeim tilgangi að jafna launamun karla og kvenna. Í grein 7.5 í þjónustusamningi Reykjalundar og ríkisins segir: Fari fram endurmat á launa- og verðlagsforsendum fjárveitinga til sambærilegra ríkisstofnana innan ársins skal endurskoða framlag til verksala með sama hætti.Samningsbrot Að okkar mati er það því brot á samningi þessum að Reykjalundur njóti ekki sömu launahækkunar og starfsmenn annarra ríkisstofnana á heilbrigðissviði. Við teljum það óásættanlegt að starfsmenn Reykjalundar dragist aftur úr hvað launakjör varðar í beinum aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Líkt og aðrar heilbrigðisstofnanir er Reykjalundur mannaður af konum í meirihluta. Starfsmenn á Reykjalundi hafa tekið á sig kjaraskerðingar síðustu misseri og því er það réttlætismál að Reykjalundur fái einnig fjármagn skv. jafnlaunaátaki ríkisstjórnarinnar til að jafna hlut sinna starfsmanna í gegnum stofnanasamning. Fjármálaráðherra og velferðarráðherra hafa borist erindi, bæði frá forstjóra Reykjalundar og fulltrúum stéttarfélaga í BHM, til þess að knýja á um þetta mál en án árangurs. Því biðlum við til þín að taka málið upp og leiða það til lykta. Við bendum á að miðlægur samningur BHM rennur út í lok janúar og því mikilvægt að þessi leiðrétting verði komin til framkvæmda fyrir þann tíma svo starfsmenn Reykjalundar gangi til þeirra samninga á jafnréttisgrundvelli. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Sjá meira
Við viljum vekja athygli þína á því að jafnlaunaátak ríkisstjórnarinnar sem samþykkt var í janúar 2013 nær ekki til Reykjalundar og hefur því frekar aukið á ójöfnuð innan heilbrigðistétta en jöfnuð. Staðan er sú að Landspítali, Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurlands hafa fengið fjármagn til að hækka laun starfmanna sinna í skilgreindum kvennastéttum í gegnum stofnanasamninga í þeim tilgangi að jafna launamun karla og kvenna. Í grein 7.5 í þjónustusamningi Reykjalundar og ríkisins segir: Fari fram endurmat á launa- og verðlagsforsendum fjárveitinga til sambærilegra ríkisstofnana innan ársins skal endurskoða framlag til verksala með sama hætti.Samningsbrot Að okkar mati er það því brot á samningi þessum að Reykjalundur njóti ekki sömu launahækkunar og starfsmenn annarra ríkisstofnana á heilbrigðissviði. Við teljum það óásættanlegt að starfsmenn Reykjalundar dragist aftur úr hvað launakjör varðar í beinum aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Líkt og aðrar heilbrigðisstofnanir er Reykjalundur mannaður af konum í meirihluta. Starfsmenn á Reykjalundi hafa tekið á sig kjaraskerðingar síðustu misseri og því er það réttlætismál að Reykjalundur fái einnig fjármagn skv. jafnlaunaátaki ríkisstjórnarinnar til að jafna hlut sinna starfsmanna í gegnum stofnanasamning. Fjármálaráðherra og velferðarráðherra hafa borist erindi, bæði frá forstjóra Reykjalundar og fulltrúum stéttarfélaga í BHM, til þess að knýja á um þetta mál en án árangurs. Því biðlum við til þín að taka málið upp og leiða það til lykta. Við bendum á að miðlægur samningur BHM rennur út í lok janúar og því mikilvægt að þessi leiðrétting verði komin til framkvæmda fyrir þann tíma svo starfsmenn Reykjalundar gangi til þeirra samninga á jafnréttisgrundvelli.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar