89% er ekki nóg Bjarni Gíslason skrifar 2. nóvember 2013 06:00 „Hér er maður á 53 sem hugsar ekki um börnin í Afríku, neyð annarra skiptir hann engu máli,“ kallar drengur í gjallarhorn á tröppum manns sem hikar við að gefa pening í fötu sem hann réttir að honum, „ætlarðu að gefa núna?“ spyr drengurinn og gefur í skyn að hann geti alveg kallað meira yfir hverfið. Nei, svona stendur maður ekki að söfnun, enda er þessi sena í fræðslumyndbandi til fermingarbarna til að sýna hvernig á EKKI að hegða sér og þau hvött til að sýna kurteisi og hegða sér vel. Fermingarbörn um allt land horfa á bráðskemmtileg myndbönd um hvernig á að fara að (og ekki) þegar þau ganga í hús um allt land og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Það munu þau gera 4.-7. og 11.-12. nóvember næstkomandi. Þessi myndbönd er hægt að sjá á heimasíðu Hjálparstarfsins help.is. Þetta er í 15. sinn sem fermingarbörn standa fyrir söfnun til vatnsverkefna Hjálparstarfsins í Úganda, Malaví og Eþíópíu. Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna um framgang þúsaldarmarkmiðanna, sem kom út í júní 2012, kemur fram að 1990 höfðu 76% jarðarbúa aðgang að hreinu vatni en árið 2010 var hlutfallið komið í 89%. Þetta er frábær árangur en gleymum því ekki að jarðarbúar eru 7 milljarðar. 11% sem ekki hafa aðgang að hreinu vatni eru 770 milljónir manna. Staðreynd sem fermingarbörn hafa verið frædd um og þau vilja gera sitt til að bæta ástandið, segja að 89% sé ekki nóg. Handgrafinn brunnur kostar um 180.000 krónur. Brunnur sem gefur hreint, tært vatn gjörbreytir aðstæðum til hins betra. Með brunninum kemur fræðsla um smitleiðir sjúkdóma og mikilvægi hreinlætis. Bætt hreinlætisaðstaða dregur mjög úr sjúkdómum og dauðsföllum vegna þeirra. Þegar nóg vatn er til staðar er hægt að hefja geita- og hænsnarækt og rækta grænmetisgarða með fjölbreyttari tegundir grænmetis. Þannig verður vatnið grundvöllur betri afkomu og betri heilsu. Tökum vel á móti fermingarbörnunum þegar þau banka upp á, hrósum þeim fyrir dugnaðinn og fyrir að taka til sinna ráða og leggjum fram það sem við getum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson Skoðun Skoðun Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Sjá meira
„Hér er maður á 53 sem hugsar ekki um börnin í Afríku, neyð annarra skiptir hann engu máli,“ kallar drengur í gjallarhorn á tröppum manns sem hikar við að gefa pening í fötu sem hann réttir að honum, „ætlarðu að gefa núna?“ spyr drengurinn og gefur í skyn að hann geti alveg kallað meira yfir hverfið. Nei, svona stendur maður ekki að söfnun, enda er þessi sena í fræðslumyndbandi til fermingarbarna til að sýna hvernig á EKKI að hegða sér og þau hvött til að sýna kurteisi og hegða sér vel. Fermingarbörn um allt land horfa á bráðskemmtileg myndbönd um hvernig á að fara að (og ekki) þegar þau ganga í hús um allt land og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Það munu þau gera 4.-7. og 11.-12. nóvember næstkomandi. Þessi myndbönd er hægt að sjá á heimasíðu Hjálparstarfsins help.is. Þetta er í 15. sinn sem fermingarbörn standa fyrir söfnun til vatnsverkefna Hjálparstarfsins í Úganda, Malaví og Eþíópíu. Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna um framgang þúsaldarmarkmiðanna, sem kom út í júní 2012, kemur fram að 1990 höfðu 76% jarðarbúa aðgang að hreinu vatni en árið 2010 var hlutfallið komið í 89%. Þetta er frábær árangur en gleymum því ekki að jarðarbúar eru 7 milljarðar. 11% sem ekki hafa aðgang að hreinu vatni eru 770 milljónir manna. Staðreynd sem fermingarbörn hafa verið frædd um og þau vilja gera sitt til að bæta ástandið, segja að 89% sé ekki nóg. Handgrafinn brunnur kostar um 180.000 krónur. Brunnur sem gefur hreint, tært vatn gjörbreytir aðstæðum til hins betra. Með brunninum kemur fræðsla um smitleiðir sjúkdóma og mikilvægi hreinlætis. Bætt hreinlætisaðstaða dregur mjög úr sjúkdómum og dauðsföllum vegna þeirra. Þegar nóg vatn er til staðar er hægt að hefja geita- og hænsnarækt og rækta grænmetisgarða með fjölbreyttari tegundir grænmetis. Þannig verður vatnið grundvöllur betri afkomu og betri heilsu. Tökum vel á móti fermingarbörnunum þegar þau banka upp á, hrósum þeim fyrir dugnaðinn og fyrir að taka til sinna ráða og leggjum fram það sem við getum.
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar