FME: Brotalamir í rekstri Lífeyrissjóðs bænda 17. maí 2013 10:46
Fjármálaeftirlitið hefur gert ýmsar athugasemdir við rekstur Lífeyrissjóðs bænda. Meðal annars var gerð athugasemd við lánveitingar til tveggja sjóðfélaga með lánsveði í eignum einkahlutafélags þeirra. Einnig að sjóðurinn hafi ekki farið eftir ákvæðum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Fjallað er um málið á vefsíðu eftirlitsins. Þar segir að Fjármálaeftirlitið hefur framkvæmt heildarathugun hjá Lífeyrissjóði bænda með vísan til laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Athugunin fór fram með gagnaöflun og heimsókn á starfsstöð lífeyrissjóðsins hinn 3. janúar í ár. Fjármálaeftirlitið óskaði eftir því við stjórn sjóðsins að hún fæli innri endurskoðanda að gera sérstaka grein fyrir því hvort gripið hefði verið til viðeigandi ráðstafana vegna athugasemda og ábendinga sem vikið er að í skýrslunni. Greinargerð innri endurskoðanda skal berast Fjármálaeftirlitinu eigi síðar en 8. júlí.Margvíslegar athugasemir Helstu athugasemdir sem Fjármálaeftirlitið gerði við starfsemi sjóðsins voru eftirfarandi: Fjármálaeftirlitið gerði athugasemd við að innri starfsreglur sjóðsins hafi ekki verið yfirfarnar í samræmi við ákvæði þeirra reglna sem sjóðurinn hefur sjálfur sett sér. Einnig að ekki hafi verið fylgt eftir í öllum tilfellum verklagsreglum um verðbréfaviðskipti starfsmanna sjóðsins. Fjármálaeftirlitið gerði athugasemd við að ekki hafi verið farið eftir ákvæðum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Er sérstaklega litið til þess að sjóðurinn hafi ekki sett sér skriflegar innri reglur. Fjármálaeftirlitið gerði athugasemd við eignastýringarsamning sjóðsins. Samningurinn hafði ekki verið uppfærður í þrjú ár til samræmis við þá fjárfestingastefnu sem gildir fyrir sjóðinn hverju sinni, en hún er að jafnaði yfirfarin a.m.k. árlega. Fjármálaeftirlitið gerði athugasemd við lánveitingar til tveggja sjóðfélaga með lánsveði í eignum einkahlutafélags þeirra. Fjármálaeftirlitið taldi jafnframt í nokkrum tilfellum að upplýsingagjöf sjóðsins þyrfti að vera nákvæmari. Fjármálaeftirlitið gerði athugasemd við að sjóðurinn væri ekki með skriflega þjónustusamninga við tvo hýsingaraðila.
Mest lesið Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Sjá meira