Einleikurinn um Rachel Corrie sýndur í Jerúsalem Guðsteinn Bjarnason skrifar 9. júlí 2013 08:00 Ísraelska leikkonan Sivane Kretchner í hlutverki sínu á sviði Khan-leikhússins í Jerúsalem. Mynd/AP
Einleikur um bandarísku stúlkuna Rachel Corrie er þessa dagana fluttur á hebresku í Khan-leikhúsinu í Jerúsalem. Corrie lét lífið á Gasaströnd árið 2003 þegar hún tók þátt í mótmælum gegn niðurrifi húsa. Hún varð fyrir jarðýtu frá ísraelska hernum. „Ég sé ekki Rachel Corrie fyrir mér sem umdeilda persónu,” hefur AP-fréttastofan eftir Sivane Kretchner, leikkonunni sem fer með hlutverk hennar. „Hún var með fallega sál og hún gat horft á eitthvað og sagt: þetta er rétt og þetta er rangt." Leikritið um Corrie var fyrst flutt í London árið 2005, tveimur árum eftir atburðina á Gasa. Það var flutt hér á landi í Borgarleikhúsinu árið 2009. Foreldrar hennar, Cindy og Craig, sáu flutning einleiksins hér á landi og hafa einnig séð það á frönsku og tyrknesku, auk ensku útgáfunnar. Þau fagna því að það sé nú flutt í Jerúsalem. „Með því að sýna þetta á hebresku í Jerúsalem er saga Rachelar komin í heilan hring,” segir Cindy Corrie, móðir hennar. „Með þessu er verið að flytja það til áhorfenda sem þurfa á því að halda að heyra orð Rachelar, það sem hún hafði að segja.” Ísraelskir stjórnmálamenn hafa hótað því að svipta leikhús, sem flytur þennan einleik, fjárstuðningi frá hinu opinbera. Borgaryfirvöld í Jerúsalem samþykktu engu að síður í síðustu viku óbreyttan stuðning við Khan-leikhúsið, þar sem einleikurinn var frumfluttur nú á sunnudaginn.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira