Viðbygging reist eftir umdeildri tillögu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. nóvember 2013 07:00 Heilsteypt og aðlaðandi, segir í umsögn dómnefndar um verðlaunatillögu Hebu Hertervig, Karls Magnúsar Karlssonar og Ólafs Óskars Axlessonar hjá VA arkitektum. Mynd/VA arkitektar „
Guðjón Samúelsson hefði aldrei útfært þetta svona og aldrei gefið leyfi fyrir þessu svona,“ segir Bolli Kristinsson kaupmaður um verðlaunatillögu í samkeppni um viðbyggingu við Sundhöll Reykjavíkur. Bolli fékk Ívar Örn Guðmundsson arkitekt árinu 2001 til að gera teikningu að stækkun Sundhallarinnar sem hönnuð var af Guðjóni Samúelssyni húsameistara á sínum tíma. „Tillagan var um það bil þannig að það var eins og það hefðu fundist gamlar tillögur að útisundlaug og að þetta væri ein heild í þeim fallega deco-stíl sem að Sundhöllin er,“ segir Bolli. Ívar þróaði síðan tillögu sína áfram fyrir Aflavaka nokkrum árum síðar. Hann sendi inn tillögu í samkeppnina nú en hún var ekki var tekin til dóms.Sumir nefna tillögu Ívars Arnar Guðmundssonar fyrir Aflvaka um miðjan síðasta áratug þá leið sem hafa átt að velja fyrir viðbyggingu við Sundhöllina.Mynd/Nexus ArkitektarSkiptar skoðanir eru um ágæti verðlauatillögunar frá VA arkitektum. Dómnefndin segir aðlögunina að Sundhöllinni einstaklega vel heppnaða. Sumir segja stílinn hins vegar ekki passa. „Sigurtillagan er að mínu mati látlaus og stílhrein,“ segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarrráðs. „Hún reynir ekki að keppa við arkitektúr Guðjóns Samúelssonar heldur er aðlögunin mjög vel heppnuð, einsog segir í dómnefndarálitinu. Gler er ekki notað til að vera með stæla heldur til að gamla byggingin njóti sín áfram.“Bolli Kristinsson.Fréttablaðið/GVA Best segir Dagur þó að sér þyki að myndað sé skjólgott útisvæði með vaðlaug fyrir börn, lítilli rennibraut og pottum sem allt snúi mót suðri. „Þetta er einfaldlega útilaug með þeim lífsgæðum sem þeim fylgja - sem er nákvæmlega það sem stefnt var að,“ segir hann. Borgarráð samþykkti á fimmtudag að hefja endanlega hönnun á viðbyggingunni. Dagur segir framkvæmdir eiga að geta hafist undir lok næsta árs og að opnun verði um tveimur árum síðar.Dagur B. Eggertsson.Endanleg kostnaðaráætlun liggur ekki fyrir en Dagur segir að miðað við fyrri reynslu megi áætla að grunnkostnaður verði um einn milljarður króna. „Rekstrarkostnaður ætti hins vegar ekki að aukast mikið því Sundhöllin er þegar í fullum rekstri. Hins vegar vonumst við til að laugin verði vinsæl og skapi borginni góðar tekjur þótt laugarnar okkar séu auðvitað fyrst og fremst lífsgæða og lýðheilsumál,“ segir formaður borgarráðs. „Mér finnst æðislegt að það sé verið að búa til þessa sundlaug. Það er besta mál að þessu hverfi sé þjónað betur. En það er oft sem fólki finnst byggt glannalega við gömul meistarverk. Í fæstum tilfellum heppnast það vel,“ segir Bolli Kristinsson.
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Sjá meira