Úlfshjarta Guðrún G. Sveinbjörnsdóttir skrifar 16. nóvember 2013 06:00 Lestrarvenjur unglinga hafa verið töluvert í umræðunni undanfarið og kannanir sýna að mikill hluti þeirra les ekki bækur sér til ánægju. Í starfi mínu sem íslenskukennari hefur mér fundist framboð bóka sem höfða til þessa mikilvæga lesendahóps oft á tíðum hafa verið takmarkað. Þess vegna langar mig að vekja athygli á bókinni Úlfshjarta eftir Stefán Mána sem kom út á þessu ári. Úlfshjarta er tvímælalaust kærkomin viðbót við þær bókmenntir sem lesnar hafa verið í gegnum tíðina á efsta stigi grunnskóla og í framhaldsskólum. Úlfshjarta er skrifuð fyrir ungmenni (young adults) og efnistök höfundar eiga fullt erindi við markhópinn sem bókin er ætluð. Aðalsögupersónan er 19 ára strákur sem þarf að læra að lifa með afar sérstökum persónueinkennum. Sagan er í senn ástar-, spennu- og ævintýrasaga, þar sem tekin eru til umfjöllunar ýmis málefni sem fólk almennt glímir við á lífsleiðinni. Sem dæmi um viðfangsefni má nefna glæpi og ofbeldi af ýmsu tagi, áfengis- og vímuefnaneyslu, sjálfsmynd og þá þætti sem móta hana, samskipti foreldra og barna og tilfinningar af ýmsu tagi. Bókin höfðar jafnt til stráka og stelpna og ég mæli hiklaust með henni til bókmenntakennslu, einkum ef eftirfarandi tilvitnun úr Aðalnámskrá grunnskóla er höfð að leiðarljósi: „Þannig getur bókmenntakennsla í skólum stuðlað að sterkari sjálfsmynd nemenda og kennt þeim umburðarlyndi í garð ólíkra menningarsamfélaga og minnihlutahópa.“ (Aðalnámskrá, 2013, bls. 99) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Sjá meira
Lestrarvenjur unglinga hafa verið töluvert í umræðunni undanfarið og kannanir sýna að mikill hluti þeirra les ekki bækur sér til ánægju. Í starfi mínu sem íslenskukennari hefur mér fundist framboð bóka sem höfða til þessa mikilvæga lesendahóps oft á tíðum hafa verið takmarkað. Þess vegna langar mig að vekja athygli á bókinni Úlfshjarta eftir Stefán Mána sem kom út á þessu ári. Úlfshjarta er tvímælalaust kærkomin viðbót við þær bókmenntir sem lesnar hafa verið í gegnum tíðina á efsta stigi grunnskóla og í framhaldsskólum. Úlfshjarta er skrifuð fyrir ungmenni (young adults) og efnistök höfundar eiga fullt erindi við markhópinn sem bókin er ætluð. Aðalsögupersónan er 19 ára strákur sem þarf að læra að lifa með afar sérstökum persónueinkennum. Sagan er í senn ástar-, spennu- og ævintýrasaga, þar sem tekin eru til umfjöllunar ýmis málefni sem fólk almennt glímir við á lífsleiðinni. Sem dæmi um viðfangsefni má nefna glæpi og ofbeldi af ýmsu tagi, áfengis- og vímuefnaneyslu, sjálfsmynd og þá þætti sem móta hana, samskipti foreldra og barna og tilfinningar af ýmsu tagi. Bókin höfðar jafnt til stráka og stelpna og ég mæli hiklaust með henni til bókmenntakennslu, einkum ef eftirfarandi tilvitnun úr Aðalnámskrá grunnskóla er höfð að leiðarljósi: „Þannig getur bókmenntakennsla í skólum stuðlað að sterkari sjálfsmynd nemenda og kennt þeim umburðarlyndi í garð ólíkra menningarsamfélaga og minnihlutahópa.“ (Aðalnámskrá, 2013, bls. 99)
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar