Stjörnuhjónin Nicole Kidman og Keith Urban eru einstaklega ástfangin og sáu enga ástæðu til að fela það á kvikmyndahátíðinni í Cannes um helgina.
Þau mættu saman á sýningu á myndinni Inside Llewyn Davis og gátu vart haft augun af hvort öðru.

Parið, sem er búið að vera gift í næstum því sjö ár, kysstust og föðmuðust á rauða dreglinum á meðan ljósmyndarar smelltu af þeim gommu af myndum.


