

Réttarkerfi Íslendinga er illa haldið
Umrætt atvik átti sér stað í Gálgahrauni þann 21. október sl. þar sem lögreglu hafði verið falið að fjarlægja fólk af yfirlýstu framkvæmdasvæði vegna fyrirhugaðrar vegarlagningar yfir hraunið. Það er ljóst að ég fór ekki að tilmælum lögregluþjóns sem sagði mér að hafa mig á brott. Ég var staddur á óröskuðu hrauni, utan þess svæðis sem verktakinn hafði afmarkað.
Á þessum tíma hafði kæra fjögurra hagsmunasamtaka á hendur vegamálastjóra verið tekin fyrir sem dómsmál, kæra sem dregur í efa lögmæti vegaframkvæmdanna. Ljóst var að tilgangur verktakanna var að framkvæma óafturkræf spjöll á því hrauni sem málið varðar, en því hefur enn ekki fengist svarað hver heimilaði þessa fyrirfram undirbúnu lögregluaðgerð. Við sem vorum þarna stödd vildum, með friðsömum hætti, standa í vegi fyrir ónýtingu kærumálsins.
Ég svaraði lögreglunni að ég gæti ekki vikið sökum máttleysis, eitthvað sem óneitanlega svipaði til einkenna sem virtust hrjá réttarkerfið á Íslandi. Þar með var ég borinn af svæðinu. Ég vil að það komi fram að ég þarf ekki að sakast við lögregluþjónana sem báru mig burt því í mínu tilviki unnu þeir sitt verk faglega, sem því miður ekki átti alls við í öllum tilvikum. Ákæru lögreglustjóra hafna ég auðvitað í ljósi þess að nefnd kærumál voru og eru óútkljáð fyrir dómstólum.
Breitt yfir ósómann
Það hvarflar ekki að mér að taka tilboði um dómsátt og greiða sekt sem jafngildir viðurkenningu á því að hafa breytt rangt í umræddu tilviki. Sáttarboðið lít ég á sem tilraun yfirvalda til að breiða yfir sinn ósóma og koma ábyrgð ásteytinganna yfir á þá sem lögreglan handtók í stað þess að skoða réttmæti valdbeitingar og kúgunar. Ég býst ekki við að nokkur maður skrifi undir slíkt.
Á sama tíma fær ráðherra að komast upp með að lýsa því yfir opinberlega í kvöldfréttum RÚV að lögmæti framkvæmdanna sé ekkert álitamál. Það ætti að vera ólíðandi að dómsmálaráðherra fái óáreittur að halda slíku fram meðan fyrrgreint kærumál er til meðferðar hjá dómstólum og að auki tvö önnur dómtekin kærumál sem varða sömu deiluna um lagningu vegar í hrauninu. Dómstólar eru tilgangslausir ef ráðherra getur sagt með þessum hætti fyrir um úrslit málaferla áður en þau eru til lykta leidd í réttarsölum.
Því má fullyrða að réttarkerfið þurfi aðhlynningu og ráðherrann aðhald. Að öðrum kosti getur hagræðingarnefndin allt eins bætt því við á lista sína að spara megi þann kostnað sem kerfið útheimtir og hrósað ráðherra fyrir skörulegt framtak og þann dugnað að bæta á sig hlutverki dómara.
Nokkru áður en lögreglu var skipað að gangast fyrir umdeildri vegargerð fréttist af fundi með viðkomandi ráðherra þar sem hann hélt því fram að umrætt deilumál væri ekki á sínu borði. Þá var hlegið góðlátlega að málflutningi ráðherra dóms- og samgöngumála við jaðar Gálgahrauns. Allir gátu á sinn hátt skilið þá klaufalegu tilraun til að forðast það að flækjast í þetta vonda mál. En þeir hinir sömu brosa ekki lengur að hlutdeild ráðherrans. Víst er að á hvorn veg sem málaferlin fara, þá liggur beint við að nefna nýjan akveg yfir hraunið eftir slóða sem þarna markar enn fyrir – Sakamannastíg.
Skoðun

Nokkur orð um Kúbudeiluna og viðskiptabannið
Gylfi Páll Hersir skrifar

Ráðherrar með reiknivél og leyndarhyggju
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Gróf misbeiting illa fengins valds
Örn Sigurðsson skrifar

Að sækja gullið (okkar) grein 2
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir
Davíð Aron Routley skrifar

Pólítískt hugrekki
Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar

Vísir að lægri orkureikningi
Einar Vilmarsson skrifar

Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld
Ögmundur Jónasson skrifar

Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur
Margrét Kristín Blöndal skrifar

Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt
Ian McDonald skrifar

Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar?
Bogi Ragnarsson skrifar

Vönduð vinnubrögð?
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð
Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar

Veitingastaðir eru ekki kjarnorkuver
Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

Nýr vegvísir Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna
Clara Ganslandt skrifar

Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar
Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar

Blaður 35
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Kaldar kveðjur frá forsætisráðherrra til ferðaþjónustunnar
Pétur Óskarsson skrifar

Nú hefst samræmt próf í stærðfræði
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar

Rangfærslur Viðskiptaráðs
Finnbjörn A. Hermannsson skrifar

Sanngirni í Kópavogsmódelinu
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ríkisstjórnarflokkarnir fylgja Landsvirkjun – gegn Þjórsárverum
Svandís Svavarsdóttir,Álfheiður Ingadóttir skrifar

Skapandi framtíð – forvarnir og félagsstarf í Hafnarfirði
Kristín Thoroddsen skrifar

Upplýsingar um mataræði barna og unglinga á landsvísu eru of gamlar – það er óásættanlegt
Birna Þórisdóttir,Sigurbjörg Bjarnadóttir,Inga Þórsdóttir skrifar

Hvaða orka?
Birgir Sverrisson skrifar

Það skiptir máli hvernig gervigreind er notuð í kennslu
Hjörvar Ingi Haraldsson skrifar

Friðum Eyjafjörð
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar

Sóknaráætlanir landshlutanna – lykillinn að sterkara Íslandi
Páll Snævar Brynjarsson,Sigríður Ó. Kristjánsdóttir,Sveinbjörg Rut Pétursdóttir,Albertína Friðbjörg Elíasdóttir,Bryndís Fiona Ford,Ingunn Jónsdóttir,Berglind Kristinsdóttir,Páll Björgvin Guðmundsson skrifar

Eflum samstöðuna á kvennaári – Stöndum vörð um mannréttindi
Kristín Ástgeirsdóttir skrifar